Idol-fjör og fögnuður í gær – MYNDIR
Fjölskylda og vinir Birkis Blæs Óðinssonar fylgdust grannt með í gærkvöldi þegar hann keppti í undanúrslitum sænsku Idol söngkeppninnar á sjónvarpsstöðinni TV4. Móðir hans, eiginmaður hennar, tveir bræðra Birkis og ömmur hans voru í hópi fólks sem horfðu á þáttinn á stóru tjaldi á veitingastaðnum Vamos við Ráðhústorg á Akureyri. Í Idol-salnum í Stokkhólmi voru Jón Óðinn Waage, faðir Birkis, Inga Björk Harðardóttir, eiginkona hans, og fleiri úr fjölskyldunni. Á báðum stöðum var fagnað vel og innilega, fyrst þegar ljóst var að Birkir kæmist í þriggja manna úrslit og með enn meiri tilþrifum þegar tilkynnt var síðar í þættinum að hann yrði annar tveggja keppenda í úrslitaþættinum eftir viku.
Vel var fagnað og innilega á Vamos, þegar tilkynnt var að Birkir væri kominn í úrslitaþáttinn. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.
Í Idol-salnum í Stokkhólmi fögnuðu Jón Óðinn Waage, faðir Birkis Blæs, og eiginkona hans, Inga Björk Harðardóttir. Skjáskot af TV4.