Félag Hákonar fær 2 milljarða í lyfjaþróun
Erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics (AT) á Akureyri hefur tryggt sér 12,5 milljóna evra fjármögnun, sem svarar til 1,9 milljarða króna, frá nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Fjármunirnir verða notaðir til þess að hefja næsta þróunarfasa á nýju lyfi fyrirtækisins við ættgengri íslenskri heilablæðingu, að því er segir í Morgunblaðinu. Rannsóknir AT sýna einnig fram á virkni lyfsins gegn heilabilun af öðrum orsökum, þar á meðal alzheimer-sjúkdómnum.
Fjármögnunin er sú stærsta sinnar tegundar sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið vilyrði fyrir hjá umræddum sjóði, The European Innovation Council (EIC), að því er fram kemur í Morgunblaðinu.
_ _ _ _
- Akureyringurinn Hákon Hákonarson, læknir í Bandaríkjunum, stofnaði Arctic Therapeutics fyrir nokkrum árum. Félagið er með starfsaðstöðu á Borgum, rannsóknarhúsi Háskólans á Akureyri. Akureyri.net fjallaði fyrst um Hákon og fyrirtækið í apríl árið 2021 og þá sagði hann markmiðið að starfsmenn við lyfjaþróun yrðu orðnir 100 eftir tvö til þrjú ár. Smellið hér til að sjá þá umfjöllun.
_ _ _ _
„Þetta er fyrst og fremst viðurkenning á því að þetta verkefni er byggt á traustum vísindum, og rannsóknaráætlun sem við höfum gert um klíníska þróun á nýju lyfi við íslensku arfgengu heilablæðingunni og tengdum sjúkdómum er vísindalega mjög sterk,“ segir Hákon við Morgunblaðið í dag. Hákon er forstjóri erfðarannsóknamiðstöðvar barnaháskólasjúkrahússins í Fíladelfíu. Hann bætir því við að væntingar um að lyfið virki gegn alzheimer-sjúkdómnum eigi þátt í jákvæðri afgreiðslu.
Fram kemur í Morgunblaðinu að áætlað sé að hefja klíníska rannsókn á lyfinu við íslensku arfgengu heilblæðingunni um mitt næsta ár og setja það á markað eftir tvö til þrjú ár. Þá taki við rannsóknir á tengdum sjúkdómum í Evrópu. Ef þær gangi vel aukist margfalt líkurnar á að lyfið virki gegn alzheimer.
Mörg þúsund fyrirtæki sóttust eftir stuðningi
Ívar Hákonarson, framkvæmdastjóri AT, segir í Morgunblaðinu að ákveðið hafi verið í byrjun ársins að sækja um stuðning evrópska sjóðsins. Umsóknarferlið sé í þremur þrepum og mörg þúsund fyrirtæki hafi sóst eftir stuðningi. Tæplega 1100 fyrirtæki hafi komist í gegnum fyrsta fasann og fengið að skila fullunninni umsókn í haust. Í framhaldinu hafi forsvarsmönnum tæplega fjórðungs þeirra verið boðið í viðtal sem er þriðji og síðasti fasinn. Sjóðsstjórnin hafi síðan ákveðið að styrkja 78 verkefni og AT verið eitt af þeim fyrirtækjum sem fékk mesta stuðninginn, hámarksstyrk og hlutafjárframlag sem sé með því hæsta sem sjóðurinn hafi gefið vilyrði fyrir.
- Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.