Fara í efni
Alþingiskosningar 2021

Hvernig þingmenn vilt þú að vinni fyrir þig?

Fólk í öllum og ólíkum stjórnmálaflokkum gegnir mikilvægu hlutverki í okkar lýðræðissamfélagi. Stjórnmálafólk er í leiðtogahlutverki og meginhlutverk þess er að hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, vinna fyrir hana og vera til fyrirmyndar í störfum sínum. Stjórnmálafólk er því í þjónustuhlutverki fyrir aðra og ber að taka það hlutverk alvarlega.

Þjónandi forysta

Þjónandi forysta er hugmyndafræði Roberts K. Greenleaf, en hann segir sanna leiðtoga vera þjóna samfélagsins. Þar sem þeir séu í forystu þurfi þeir að búa yfir innri styrk og framtíðarsýn en síðast en ekki síst þurfi þeir að búa yfir einlægum áhuga á högum annarra.

Þjónandi leiðtogar eiga auðvelt með að skuldbinda sig til að setja þjónustu, jafnræði og heildarhagsmuni í fyrsta sæti. Það samræmist vel okkar persónulegu sýn og grunnhugmyndafræði Viðreisnar.

Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að samfélög sem ná árangri byggja á leiðtogum sem eru hvetjandi og drifnir áfram af gildum, trausti og virku samstarfi við fólkið sem þeir þjónusta. Þannig leiðtoga viljum við og sú sýn er klárlega það sem drífur okkur áfram og ástæða þess að við gefum kost á okkur til að vinna fyrir þig.

Við hlustum

Sú færni að kunna að hlusta á aðra er einn veigamesti eiginleiki þeirra leiðtoga sem ná raunverulegum árangri. Rannsóknir sýna að hlustun styður við vöxt þeirra sem fá hana. Hlustun grundvallar góð samskipti, laðar fram hugmyndir, eykur ánægju og góðan árangur.

Þá skiptir virk hlustun, sem felur í sér samhyggð, meginmáli því sá sem hlustar á þann hátt heyrir ekki aðeins það sem sagt er heldur einnig það sem býr að baki orðunum og varðar ekki síst tilfinningar eða líðan.

Þetta er eiginleiki sem mikilvægt er að þjálfa og með virkri hlustun má stórauka traust og jafningjabrag. Í þessu liggur einnig sá grundvallarmunur sem er á því að hlusta til að skilja og að hlusta til að svara. Við hlustum til að skilja.

Þjónandi stjórnmálafólk

Stjórnmálafólk sem áttar sig á inntaki þjónustuhlutverks síns og er gætt þessum forystueiginleikum ætti að vera eftirsóknarvert. Slíkir þjónandi leiðtogar eru sannir umboðsmenn fólksins, þeir eru rödd þess og þannig stjórnmálafólk þurfum við til starfa á Alþingi.

Þingmenn sem leggja metnað sinn í að hlusta og þjóna fólkinu í landinu eru leiðtogar sem taka almannahagsmuni umfram sérhagsmuni. Það er meginstef í stefnu Viðreisnar og þannig leggjum við alltaf áherslu á að setja fólkið í fyrsta sætið.

Við viljum vinna fyrir þig

Í störfum okkar, stjórnun og ráðgjöf til margra ára höfum við tileinkað okkur hugmyndafræði þjónandi forystu. Það má glögglega sjá í okkar stjórnunarstíl, samskiptum og fyrri verkum.

Fyrir okkur er það því sjálfgefið og liggur beint við að yfirfæra þessa nálgun á ný hlutverk okkar sem þátttakendur í stjórnmálum. Þess vegna viljum við vinna fyrir þig. Hvernig stjórnmálafólk vilt þú að vinni fyrir þig á Alþingi?

Eiríkur Björn skipar 1. sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust og Sigríður skipar 2. sæti listans.