Alþingiskosningar 2021
Atkvæðagreiðsla hafin utan kjörfundar
17.08.2021 kl. 06:00
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingkosninganna 25. september er hafin hjá sýslumönnum. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum og útibúum allra sýslumanna og vert að taka fram að þeim sem eru á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu eða lögheimili.
Hjá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra fer atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram sem hér segir:
Akureyri – Mánudaga til fimmtudaga frá 9.00 til 15.00 og föstudaga frá 9.00 til 14.00.
Húsavík – Mánudaga til fimmtudaga frá 9.00 til 15.00 og föstudaga frá 9.00 til 14.00.
Siglufjörður – Mánudaga til fimmtudaga frá 9.00 til 15.00 og föstudaga frá 9.00 til 14.00.
Þórshöfn – Virka daga frá 10.00 til 14.00.