Fara í efni
Alfreð Gíslason

Þórsarar höfðu ekki roð við Haukum

Amandine Toi, sem hér er með boltann, gerði 29 stig fyrir þór í gær. Maddie Sutton, til hægri, gerði aðeins þrjú stig en tók hins vegar 16 fráköst. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kvennalið Þórs tapaði með 24 stiga mun, 97:73, fyrir Haukum í Hafnarfirði í gærkvöldi í efstu deild Íslandsmótsins í körfubolta, Bónusdeildinni. Með sigrinum tryggðu Haukar sér deildarmeistaratitilinn. 

Þórsarar byrjuðu af ótrúlegum krafti og komust í 9:0. En veður skipast oft skjótt í lofti og eftir þennan frábæra upphafskafla sáu Þórsstelpurnar vart til sólar; Haukur gerðu næstu 19 stig og staðan eftir fyrsta leikhluta var 21:13.

Jafnræði var með liðunum í öðrum og þriðja leikhluta en Haukarnir höfðu aftur mikla yfirburði í fjórða og síðasta leikhluta.

Leikurinn í gær er einn sá slakasti hjá Þórsliðinu í vetur. Stelpurnar hafa skemmt áhorfendum konunglega hvað eftir annað en að þessu sinni gekk í raun lítið sem ekkert upp. Vonandi á máltækið fall er fararheill við í þessu tilfelli en frammistaðan ekki fyrirboði um það sem koma skal því mikilvæg verkefni eru framundan.

Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Amandine Toi 29 - 1 - 5 - 21 framlagsstig
  • Maddie Sutton 3 - 16 -
  • Esther Fokke 9 - 7 - 2
  • Eva Wium Elíasdóttir 15 - 3 - 1
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir 1 - 8 - 3
  • Natalia Lalic 10 -1 - 1
  • Hanna Gróa Halldórsdóttir 6 - 4 - 1
  • Adda Sigríður Ásmundsdóttir 0 - 1 - 1
  • Katrín Eva Óladóttir 0 - 1 - 1

Þórsliðið á eftir leik einn þar til úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Lið Keflavíkur kemur í heimsókn 26. mars en næsta verkefni er hins vegar lokasprettur bikarkeppninnar. Þórsstelpurnar mæta Grindvíkingum í undanúrslitum næstkomandi þriðjudag, 18. mars, í Smáranum í Kópavogi. Sigurvegarinn mætir síðan annaðhvort Njarðvík eða Hamri/Þór í úrslitaleik laugardaginn 22. mars. Þá verður einnig leikið í Smáranum.