Fara í efni
Akureyrarvaka

Um 80 viðburðir á Akureyrarvöku

Tónleikar á Ráðhústorgi á Akureyrarvöku í fyrra. Mynd: Andrés Rein Baldursson

Akureyrarvaka, hin árlega bæjarhátíð höfuðstaðar Norðurlands, verður haldin um næstu helgi; frá föstudegi 30. ágúst til sunnudags 1. september. Hátíðin hefur lengi verið haldin síðustu helgina í ágúst, sem næst afmæli Akureyrarbæjar sem er 29. ágúst.

Hátíðarhöldin hefjast formlega með Rökkurró í Lystigarðinum kl. 20.30 á föstudagskvöldið þar sem boðið verður upp á ýmis tónlistaratriði, dans og rómantíska stemningu í upplýstum garðinum fram eftir kvöldi.

Í tilkynningu frá bænum segir meðal annars:

Í þéttskipaðri dagskrá helgarinnar má einnig finna Draugaslóð á Hamarkotstúni, tónleikaröðina Mysing í portinu á bak við Listasafnið, götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa, Pálínuboð í Fálkafelli, Víkingahátíð á MA-túninu, Taekwondo sýningu og Fornbílasýningu í Listagilinu, svo fátt eitt sé nefnt.

Líf og fjör verður í Menningarhúsinu Hofi alla helgina og má til að mynda nefna dansviðburði sumarlistamanns Akureyrar, Leikhúslög barnanna í boði Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Sönghópinn Ómar og hina einu sönnu Unu Torfa auk þess sem Ljóðajazz fer fram á sunnudagskvöldinu í Hofi en þar koma saman íslenski rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson og danska tónskáldið Dorthe Höjland.

Síðan segir: „Hápunktur Akureyrarvöku er án efa stórtónleikar á Ráðhústorgi á laugardagskvöldinu þar sem norðlenska hljómsveitin Skandall, Skítamórall, Una Torfa, Emmsjé Gauti og sjálfur Bubbi Morthens halda uppi fjörinu. Kynnir kvöldsins er leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir.“

  • Nánar um Akureyrarvöku á Akureyri.net síðar í vikunni

Rökkurró í Lystigarðinum við upphaf Akureyrarvöku í fyrra. Mynd: Skapti Hallgrímsson