Akureyrarvaka: Hvað er um að vera í dag?
Hin árlega Akureyrarvaka var sett í gærkvöldi af forseta Íslands í Lystigarðinum. Ýmislegt var um að vera í gær og hver viðburðurinn rekur annan í dag. Forsetahjónin eru í opinberri heimsókn á Akureyri; komu norður í gærmorgun og heimsókninni lýkur síðdegis í dag.
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST
- 10.00 – 11.00 – Söguganga og sögustaurar
Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, taka þátt í sögugöngu um Innbæinn og opna Sögustaurasýningu.
Nánar hér
_ _ _
- 10.00 - 11.00 – Morgunflot í Sundlaug Akureyrar
Boðið verður upp á djúpslakandi flotupplifun undir handleiðslu vatnsmeðferðaraðila Flothettu.
Nánar hér
_ _ _
- 10.00 - 12.00 – Dansgleði í Steps
Steps Dancecenter býður upp á fría danstíma í tilefni Akureyrarvöku.
Nánar hér
_ _ _
- 10.00 - 11.30 – Huldustígur í Lystigarðinum
Gönguferð með leiðsögn Bryndísar Fjólu sjáanda og garðyrkjufræðings. Í göngunni er gengið hægum skrefum um Lystigarðinn og Bryndís Fjóla segir frá huldufólkinu og álfunum sem búa í garðinum og fyrir hvað þau standa og hver þeirra saga er.
Nánar hér
_ _ _
- 11.00 - 12.00 – Morgunsigling með Húna II
Skemmtisigling í tilefni Akureyrarvöku.
Nánar hér
_ _ _
- 12.00 - 16.00 – List getur list
Sýning í Amtsbókasafninu á verkum listamanna sem eru innblásin af öðrum listaverkum.
Nánar hér
_ _ _
- 12.00 - 13.00 – Vatnazúmba
Þórunn Kristín, vatnazúmba kennari, býður upp á opinn tíma í Sundlaug Akureyrar í tilefni Akureyrarvöku.
Nánar hér
_ _ _
- 12.00 - 13.30 – Huldustígur í Lystigarðinum
Gönguferð með leiðsögn Bryndísar Fjólu sjáanda og garðyrkjufræðings. Í göngunni er gengið hægum skrefum um Lystigarðinn og Bryndís Fjóla segir frá huldufólkinu og álfunum sem búa í garðinum og fyrir hvað þau standa og hver þeirra saga er.
Nánar hér
_ _ _
- 12.00 - 16.00 – 3 á 3 götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa
3 á 3 Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa – glæsilegasta útikörfuboltavelli landsins – við Glerárskóla. Mótið er haldið í tengslum við Akureyrarvöku.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 15.0 – Acro jóga
Hjónin Tinna Sif og Jacob Wood bjóða upp á 2 klst. opið workshop í Acro jóga í menningarhúsinu Hofi. Hjónin hafa stundað acro jóga um árabil og langar að deila þessum skemmtilegu æfingum með bæjarbúum á Akureyri.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 14.00 – Hvað var á seiði hjá Sveini?
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 22.00 – Majó - opið hús í Laxdalshúsi
Matur, drykkir og list í elsta húsi bæjarins, í tilefni Akureyrarvöku og tveggja ára afmæli Majó í Laxdalshúsi.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 13.30 – Arctic Opera
Arctic Opera er hópur klassísk þjálfaðra óperusöngvara á Norðurlandi. Hópurinn býður reglulega uppá tónleika og sýningar undir listrænni stjórn Michael Jón Clarke sem hefur þjálfað flesta flytjendur. Félagar úr Arctic Opera flytja vel valdar perlur í Hamragili í Hofi.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 17.00 – Markaður Lionsklúbbsins Ylfu
Markaður í Aðalstræti 6. Ýmislegt til sölu, öll innkoma rennur óskipt í líknarsjóð Lionsklúbbsins YLFU sem styrkir meðal annars börn og ungmenni á Akureyri og nágrenni.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 16.00 – Fjör með skátafélaginu Klakki
Skátafélagið Klakkur býður upp á dagskrá fyrir alla fyrir framan menningarhúsið Hof.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 17.00 – Fornbílasýning í Listagilinu
Félagar í fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar halda bílasýningu í Listagilinu. Bæjarbúum og gestum er boðið að skoða stífbónaða stálfáka 25 ára og eldri.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 18.00 – StartStudio
Opið verður á vinnustofu listakonunnar Unnar Stellu Níelsdóttur, StartStudio, á annarri hæð í JMJ húsinu við Gránufélagsgötu.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 17.00 – Flóamarkaður Akureyrarvöku
Í fyrra var mikið fjör á flóamarkaði Akureyrarvöku og í ár verður markaðurinn endurtekinn. Hægt verður að gera góð kaup aldrei að vita nema þú finnir fjársjóð.
Nánar hér
_ _ _
- 13.00 - 16.00 – Mennska bókasafnið
Nánar hér
_ _ _
- 13.30 - 14.30 – Alone Together
Nánar hér
_ _ _
- 13.45 - 14.15 – Götudanspartý
Hildur og Gerður bjóða öllum dansþyrstum til að koma og dansa á Ráðhústorgi.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 17.00 – Á heimavelli
Thomas Brewer, gestalistamaður Gilfélagsins og Guðmundur Ármann Sigurjónsson, listamaður og kennari, munu koma saman og sýna lítil verk á pappír, vatnslitamyndir af Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu, vídeo verk og fjögur málverk í raunstærð af fjölskyldu og vinum.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 16.00 – Fjölskyldudagur Icelandair
Fjölskyldudagur Icelandair á Glerártorgi. Boðið verður upp á fjöruga dagskrá, m.a. er ratleikur þar sem í verðlaun verður flugferð fyrir fjóra til Barcelona.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 16.00 – Opið hús hjá AkureyrarAkademíunni
Í tilefni af Akureyrarvöku verður AkureyrarAkademían með opið hús í húsakynnum sínum í verslunarmiðstöðinni að Sunnuhlíð 12. Starfsemin verður kynnt og vinnuaðstaðan sýnd.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 17.00 – GRÍMANDI í Rösk Rými
Listhópurinn Rösk býður upp á sýninguna Grímandi á Akureyrarvöku sem er listasýning og þátttökugjörningur í senn og hentar fólki á öllum aldri.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 14.50 – Sirkustónar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Á sýningu Sirkussveitar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi verður leikin hress og skemmtileg tónlist innblásin af undraverðum tónum sirkusins, meðal annars lög úr teiknimyndinni Dúmbó, Entrance of the Gladiators og Can-Can.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 17.00 – Tweed Ride Akureyri
Tweed Ride Akureyri hjóltúr í annað sinn á Akureyri. Mæting er fyrir framan Akureyrarkirkju kl. 14.00. Til að gera stemminguna sem skemmtilegasta eru þátttakendur hvattir til að klæða sig í sparifötin og koma á klassísku og virðulegu borgarhjóli. Tekið er fram að allir eru velkomnir í hvaða fatnaði og hjóli sem er.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 17.00 – Bökur og vöfflur á Kaffi Zonta
Zontaklúbbur Akureyrar stendur fyrir góðgerðakaffihúsi í Zontahúsinu Aðalstræti 54 í tilefni Akureyrarvöku.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 15.00 – Kvartettinn Ómar
Ómar er nýstofnaður söngkvartett sem heldur nú sína fyrstu tónleika, í gamla amtmannshúsinu, Hafnarstræti 49. Kvartettinn skipa Helga Kolbeinsdóttir, Harpa Björk Birgisdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Jón Pálmi Óskarsson. Á þessari fyrstu efnisskrá eru lög úr ýmsum áttum, bæði þekkt íslensk þjóðlög og verk eftir samtímahöfunda.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 17.00 – SAMTÍMA
Myndlistarélagið stendur fyrir sýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyrarvöku sem ber yfirskriftina SAMTÍMA. Sýningin er liður í að kynna félagsmenn og það sem þeir eru að fást við.
Nánar hér
_ _ _
- 14.00 - 17.00 – Körfuboltapartý
Nánar hér
_ _ _
- 15.00 - 16.00 – Salsa North
Salsa kennsla og opið dansgólf fyrir alla fyrir utan Vamos á Ráðhústorgi.
Nánar hér
_ _ _
- 15.00 - 15.20 – Brot úr Njálu á hundavaði
Hinn óviðjafnanlegi dúett Hundur í óskilum hleypur hæð sína í öllum herklæðum í Hömrum í Hofi. Þar verður slegið á fislétta strengi og meðal annars boðið upp á skerandi tóndæmi úr Njálu á hundavaði sem sýnt verður á fjölum Samkomuhússins í haust.
Nánar hér
_ _ _
- 15.00 - 23.00 – Listasafnið 30 ára
Fimm nýjar sýningar í einu flottasta listasafni á Íslandi. Ávörp flytja Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri og Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.
Nánar hér
_ _ _
- 16.00 - 17.00 – Að leysa fjötraða fegurð úr böndum
Dagskrá í Davíðshúsi við Bjarkarstíg um Davíð Stefánsson skáld og Einar Jónsson myndhöggvara í flutningi Valgerðar H. Bjarnadóttur.
Nánar hér
_ _ _
- 16.00 - 16.40 – Drottningar ásamt hljómsveit
Nánar hér
_ _ _
- 16.00 - 16.30 – Listamannaspjall með Melanie Ubaldo
Listamannaspjall með Melanie Ubaldo í Listasafninu á Akureyri. Stjórnandi Hlynur Hallsson, safnstjóri.
Nánar hér
_ _ _
- 16.30 - 17.00 – Listamannaspjall um samsýninguna Hringfarar
Listamannaspjall um samsýninguna Hringfarar í Listasafninu á Akureyri. Stjórnandi Hlynur Hallsson, safnstjóri.
Nánar hér
_ _ _
- 17.00 - 18.00 – Mysingur VI
Nánar hér
_ _ _
- 20.00 - 21.00 – Diddú og Jónas Þórir í Hofi
Diddú og Jónas hafa unnið saman á vængjum söngsins í rúm 50 ár. Þau hittust í Melaskóla og svo Hagaskóla í Vesturbænum, smullu strax saman músíklega og hafa átt sérlega farsælt samstarf við ótæmandi uppákomur í gegn um tíðina.
Nánar hér
_ _ _
- 20.15 - 20.30 – Að vera vera - Yuliana Palacios
Að vera vera – Yuliana Palacios fremur gjörning út frá samnefndri sýningu Brynhildar Kristinsdóttur
Nánar hér
_ _ _
- 20.30 - 23.30 – Stórtónleikar á Ráðhústorgi
Nánar hér
_ _ _
- 20.45 - 21.15 – The Visitors: Uppsetning, tilgangur og tilurð
Nánar hér
_ _ _
- 22.00 til miðnættis – Vídeóverkið Bylta
þrívíddar og áþreifanlegra hluta. Hún er útskrifaður innanhússarkitekt úr Konunglegu Listaakademíunni í Haag og hefur í verkum sínum kannað ímyndaða heima með tengingu rýmishönnunar og stafrænnar tækni.
Nánar hér
_ _ _
- 23.00 til miðnættis – RafKax
Raftónlist og Kaktus sameinast. Upplifun, Rými og lifandi tónlist rennur saman og myndar heild. Viðburðurinn verður í Kaktus í Listagilinu.
Nánar hér
_ _ _
- 23.30 - 00.30 – Miðnætursigling með Húna II
Nánar hér