Skip dagsins
Tvö skip við Pollinn í dag og eitt í Grímsey
13.08.2023 kl. 06:00
MS Maud verður á Akureyri í dag. Það var áður kennt við miðnætursólina - kallaðist þá MS Midnatsol - en heitir nú eftir þekktu skipi norska landkönnuðarins Roalds Amundsen sem hann sigldi í könnunarleiðöngrum um Norðausturleiðina snemma á 20. öldinni, en komst reyndar ekki á Norðurpólinn eins og hann ætlaði.
Þrjú skemmtiferðaskip verða í „landhelgi“ Akureyrar í dag; tvö við Pollinn og eitt í Grímsey.
- Maud – 530 farþegar, 75 í áhöfn – Oddeyrarbryggja – Koma 08:00 – Brottför 18.00 í dag
- Azamara Pursuit – 710 farþegar, 300 í áhöfn – Tangabryggja – Koma 09:30 – Brottför 20.00
- Le Boreal – 264 farþegar, 136 í áhöfn – Grímsey – Koma 15.00 – Brottför 20.00
Upplýsingar birtar daglega í samstarfi við Hafnasamlag Norðurlands