Fara í efni
Fréttir

Yfir 100 tonn íslensks grænmetis í Krónunni

Árlegur Bændamarkaður hófst í verslunum Krónunnar um land allt í gær og verður frá föstudegi til sunndags allar helgar í september. Verslanir verða „fullar af fjölbreyttu, fersku og ópökkuðu grænmeti beint frá býli íslenskra garðyrkjubænda hvaðanæva að á landinu,“ segir í tilkynningu frá Krónunni.

„Þetta er í áttunda sinn sem Bændamarkaður Krónunnar er haldinn og er óhætt að segja að vinsældir hans meðal viðskiptavina hafi farið vaxandi ár frá ári. Má í því sambandi nefna að á markaðnum í fyrra seldust yfir 100 tonn af nýuppteknu íslensku grænmeti samanborið við 30 tonn þegar bændamarkaðurinn var fyrst haldinn árið 2012. Búist er enn meira magni í ár sem þó mun fara eftir framboði hverju sinni frá garðyrkjubændum landsins og er því breytilegt hve marga daga markaðnum er haldið úti hverju sinni,“ segir í tilkynningunni.

Vekur forvitni og áhuga unga fólksins

„Fyrir utan það hve brakandi ferskt íslenska grænmetið er á þessum árstíðabundna bændamarkaði hjá Krónunni hefur markaðurinn ekki síst notið mikilla vinsælda fyrir þær sakir hve fjölbreyttar tegundir eru í boði og oft nýstárlegt, framandi á litinn og „furðulegt“ í laginu“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Guðrún segir að eftir því sé tekið hve börn og unglingar hafi gaman af því að skoða úrvalið. „Þarna eru oft alls kyns furðupaprikur, gulrætur í ýmsum litum, litlar agúrkur auk kóralkáls og bláleits blómkáls, svo nokkuð sé nefnt; oft nýjungar sem fást ekki á öðrum tíma ársins. Ég held að þessi skemmtilegi markaður, sem haldinn er í verslunum Krónunnar um land allt í samstarfi við Sölufélag garðyrkjubænda, sé mjög vel til þess fallinn að vekja og auka áhuga fólks, einkum barna og unglinga, á íslenska grænmetinu og hollustu þess fyrir líkama og sál.“

Ættjarðartómatarnir vekja jafnan lukku

Sem dæmi um forvitnilegan ávöxt, sem gjarnan er á Bændamarkaðnum, er hinn svokallaði ættjarðartómatur (Heirloom), sem lítur út eins og tómatar gerðu fyrir daga nútímatómatarins. Ættjarðartómaturinn er þó enn vel þekktur meðal Evrópuþjóða og í Bandaríkjunum þar sem er löng hefð er fyrir tómatrækt, enda hafa þeir ýmsa eftirsóknarverða kosti. Sölufélag garðyrkjubænda segir t.d. að ættjarðartómatarnir séu þekktir fyrir að vera allskonar að lögun, stærð og í ýmsum litum. Þeir eru mjög safaríkir, bragðgóðir og hollir. Heirloom tómatar smakkast t.d. vel með ítalskri ólífuolíu, íslenskri basilíku og sjávarsalti.

Getur ekki verið ferskara

Allt íslenska grænmetið á Bændamarkaði Krónunnar er tínt eða tekið upp með reglulegu millibili dagana sem markaðurinn stendur. Það berst því nýtt og ópakkað frá bændum landsins til verslana Krónunnar og getur því ekki verið mikið ferskara en það. Guðrún segir þetta eina tíma ársins sem bændur geti selt afurðir án umbúða og að markaðurinn styrki tengingu bænda og neytenda. Hún segir Bændamarkaðinn ekki síður mikilvægan fyrir almenning. „Bændamarkaðurinn er hornsteinn íslensks landbúnaðar og fyrir okkur er þetta meira en bara viðburður – þetta er uppskeruhátíð sem ýfir upp íslenska matarmenningu og styður við staðbundna framleiðslu.“

Bændamarkaðurinn stendur yfir frá föstudegi til sunnudags næstu helgar í Krónunni.