Fara í efni
Menning

Þrjár nýjar sýningar opnaðar á Listasafninu

Laugardaginn 28. september kl. 15 verða þrjár sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri:

  • Detel Aurand og Claudia Hausfeld – Samskipti
  • Georg Óskar – Það er ekkert grín að vera ég
  • Einar Falur Ingólfsson – Útlit loptsins – Veðurdagbók.

Klukkan 15.45 hefst listamannaspjall við Georg Óskar, Detel Aurand og Claudia Hausfeld. Daginn eftir opnun, sunnudaginn 29. september, kl. 15 verður kynning og upplestur á bók Detel Aurand, We Are Here.

Detel Aurand og Claudia Hausfeld – Samskipti

Samskipti er sýningarverkefni sem byggir á viðvarandi póstsendingum á listaverkum á milli listakvennanna Claudia Hausfeld og Detel Aurand, stýrt af Katharina Wendler, segir í tilkynningu frá Listasafninu. „Þær þrjár hafa allar sterk tengsl við Ísland, hafa búið hér og unnið til margra ára og rannsakað hina svæðisbundnu listasenu ofan í kjölinn. Síðan 2017 hafa listakonurnar tvær skipst á teikningum, málverkum, klippimyndum, ljósmyndum og hlutum í póstsendingum, þar sem þær fjalla um málefni tengd eyjalífi hér og þar, í fortíð og nútíð.“

Þar segir einnig: „Í gegnum árin hafa þessi samskipti liðast í gegnum fjölmarga liti, efni og hugmyndir. Þessi sýning safnar saman ummerkjum þessa samtals og útvíkkar til gesta sýningarinnar. Með því að fella valda, fundna hluti úr þessu samtali inn í stóra innsetningu, tekur sýningin á spurningum um listræna samvinnu og vinnu einstaklinga, nánd og fjarlægð, miðju og ytri mörk, sameiginlega eiginleika og aðgreiningu.“

Sýningarstjóri: Katharina Wendler.

Georg Óskar – Það er ekkert grín að vera ég

„Yrkisefni Georgs Óskars eru fjölbreytileg og varpa ljósi á auðugt hugmyndaflug málarans sem oft setur sig í hlutverk sögumanns,“ segir Listsafnið. „Hvert verk er sjálfstæð veröld þar sem gjarnan er að finna skírskotanir til hversdagslegra atburða í samtímanum sem settir eru í allt annað og óskylt samhengi þannig að úr verður skálduð, kómísk og jafnvel kaldhæðnisleg tilvera. Hugmyndir flæða um myndflötinn, kallast á og vaxa í huga áhorfandans. Vísanir í hetjur teiknimyndanna eða kynjaverur verða honum að yrkisefni. Verkin minna okkur á hve hollt það getur verið að leita á náðir fantasíunnar og hliðarheimanna til að sjá og skilja okkar raunsönnu veröld.“

Í kynningu segir að Georg Óskar skorist ekki undan því að sýna okkur heiminn í öðru ljósi „og vekur okkur til umhugsunar. Inntak verkanna spannar vítt svið mannlegrar tilveru og vísar gjarnan til einmanaleika, fegurðar, náttúru, lífsins sjálfs og dauðans.“

Einar Falur Ingólfsson – Útlit loptsins – Veðurdagbók

Veðurdagbókin Útlit loptsins er hryggjarsúlan í röð myndlistarverka um veður og tíma sem Einar Falur Ingólfsson vann að 2022 til 2023 sem fulltrúi Íslands í fjölþjóðlegu verkefni um veðrið, Veðurneti heimsins – World Weather Network, en þátt í því tóku myndlistarstofnanir í 28 löndum. Stóran hluta þess tíma var Einar Falur staðarlistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi.

Veðurdagbókin samanstendur af 366 verkum sem byggja á þremur þáttum, ljósmynd og veðurskráningu tveggja tíma. Í eitt ár tók Einar Falur ljósmynd af himninum á hádegi og er hún birt ásamt opinberri veðurskráningu á sama augnabliki. Kallast hún á við veðurskráningu Árna Thorlaciusar (1802-1881) í Stykkishólmi 170 árum fyrr. Veðurdagbókin Útlit loptsins er sýnd í fyrsta skipti í heild auk annarra ljósmynda- og vídeóverka um veður og tíma.

Einar Falur er bókmenntafræðingur og með MFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York. Verk hans hafa verið sýnd víða um lönd og eru í eigu helstu listasafna á Íslandi.

Allar sýningar standa til 12. janúar 2025. Listasafnið á Akureyri er opið alla daga kl. 12-17.