Þjálfarateymi Þórs klárt – sigur í fyrsta leik
Þór vann B-lið KA 4:0 í Boganum á laugardaginn í Kjarnafæðismótinu, árlegu æfingamóti Knattspyrnudómarafélags Norðurlands. Fyrir leikinn var gengið formlega frá ráðningum allra í þjálfarateymi Þórs fyrir komandi keppnistímabil.
- Sigurður Heiðar Höskuldsson er nýr aðalþjálfari meistaraflokks karla og gerir samning við knattspyrnudeild út árið 2026.
- Sveinn Leó Bogason er áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla líkt og undanfarin tvö ár.
- Jónas L. Sigursteinsson heldur áfram að sjá um markmannsþjálfun meistaraflokks karla en hann kom inn í það starf fyrir ári síðan.
„Jónas hefur áratuga reynslu af þjálfun og hefur komið að þjálfun nær allra, ef ekki allra flokka Þórs á sínum þjálfaraferli auk þess að hafa þjálfað um árabil hjá Vestra.“
- Stefán Ingi Jóhannsson verður styrktarþjálfari meistaraflokks karla.
„Stefán þekkir vel til hjá okkur eftir að hafa komið að bæði sjúkra- og styrktarþjálfun undanfarin ár en tekur nú að sér enn stærra hlutverk í þjálfarateyminu.“
- Arnar Geir Halldórsson er ráðinn í nýtt starf hjá knattspyrnudeild þar sem hans hlutverk í teyminu er að leiða afreksstarf yngstu leikmanna meistaraflokks auk þess að taka að sér önnur verkefni fyrir knattspyrnudeild.
„Arnar Geir hefur verið yfirþjálfari yngri flokka frá árinu 2020 og heldur því starfi áfram samhliða en í breyttri mynd með höfuðáherslu á 2.-4.flokk og er það hluti af skipulagsbreytingum hjá unglingaráði.“
Á Facebook síðu Knattspyrnudómarafélagsins er fjallað stuttlega um leikinn, þann fyrsta hjá bæði A-liði Þórs og B-liði KA á mótinu:
„Þórsarar tefldu fram nokkuð sterku liði í bland við unga stráka en lið KA 2 var skipað leikmönnum úr 2.flokki. Þórsarar sigruðu 4-0. Fannar Malmquist Gíslason kom Þórsurum yfir á 34. mín og þannig stóðu leikar í hálfleik. Aron Ingi Magnússon opnaði seinni hálfleikinn strax eftir 50. sekúndur með fallegu marki og Ingimar Kristjánsson skoraði svo á 62. mínútu og á 81. mínútu skoraði Viðar Már Hilmarsson eftir að hafa komið inn af bekknum skömmu áður.“