Fara í efni
Menning

Kvöld í Sjallanum kveikjan að Airwaves

Strákarnir í Toymachine á sviði CBGB klúbbsins í New York í nóvember 1999. Frá vinstri: Árni Elliott, Kristján Örnólfsson, Jens Ólafsson og Atli Hergeirsson. Baldvin Zophoníasson í felum aftan við trommusettið.

TÓNDÆMI – 11

Tónlist hefur verið í hávegum höfð á Akureyri allt frá síðari hluta 19. aldar og stendur í miklum blóma nú sem endranær. Akureyri.net mun næstu misseri rifja upp eitt og annað úr tónlistarsögu bæjarins í vikulegum pistlum. Þeir birtast alla miðvikudaga._ _ _

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves er vel kunn en ef til vill ekki margir sem muna að hún á rætur að rekja til Akureyrar. Það var vorið 1999 sem áhrifafólki úr tónlistarheiminum var boðið til Íslands til að sjá íslenskar hljómsveitir troða upp í Sjallanum á Akureyri. Tónleikarnir voru skipulagðir af umboðsmönnum akureyrsku hljómsveitarinnar Toy Machine, Guðmundi Cesari Magnússyni og Svani Zophoníassyni, og fram komu einnig tvær sveitir úr Reykjavík, Dead Sea Apple og Carpet (sem síðar varð Lights on the Highway).

Úrklippa úr Morgunblaðinu eftir fyrstu Airwaves tónleikana, í flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli í október 1999. Þar segir að tónleikagestir hafi verið fremur prúðir framan af en „þegar Akureyringarnir í Toy Machine stigu á sviðið lifnaði heldur betur yfir mannskapnum og ljóst var að þeir áttu sína stuðningsmenn í salnum.“

Þegar Airwaves var haldin í 19. skipti, árið 2017, voru á þriðja tug tónleika í höfuðstað Norðurlands. Grím­ur Atla­son, fram­kvæmda­stjóri hátíðarinnar, sagði þá að í raun væri hægt að halda því fram að hátíðin væri loks á heim­leið og vísaði til tónleikanna í Sjallanum, sem urðu til þess að Icelanda­ir hélt tón­leika í flug­skýli 4 á Reykjavíkur­flug­velli 16. októ­ber 1999, nokkrum mánuðum eftir kvöldið í Sjallanum. Það voru fyrstu form­legu Airwaves-tón­leik­arn­ir, stóðu í fjór­ar klukku­stund­ir í sam­starfi Flug­leiða, Flug­fé­lags Íslands og EMI-út­gáf­uris­ans. Hug­mynd­in var að koma á fram­færi hæfi­leika­rík­um og efni­leg­um ís­lensk­um hljóm­sveit­um, auk þess að kveikja áhuga ungs fólks um all­an heim á Íslandi. Óhætt er að segja að það hafi tek­ist.

Hugmynd Guðmundar Cesars

Toy Machine var ein þeirra hljómsveita sem kom fram í flugskýlinu. Sveitina skipuðu söngvarinn Jens Ólafsson, Baldvin Zophoníasson sem lék á trommur (í seinni tíð þekktur sem kvikmyndaleikstjórinn Baldin Z), Atli Hergeirsson á bassa, gítarleikarinn Kristján Örnólfsson og Árni Elliott, sem var diskótekari og söngvari.

Þeir félagar standa á því fastar en fótunum að annar umboðsmaður þeirra, Guðmundur Cesar, sem dó hetjudauða við að bjarga lífi tengdasonar síns árið 2009, hafi fengið hugmyndina að Airwaves og eiga þar við tónleikana föstudagskvöldið 12. mars 1999 í Sjallanum.

Strákarnir í Toy Machine fyrir utan CBGB klúbbinn í New York haustið 1999. Til hægri: bassaleikarinn Atli Hergeirsson léttir á sér á vel skreyttu salerni staðarins.

Útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson tekur sama streng. Hann segir Guðmund Cesar hafa verið stórhuga mann sem skyndilega fékk áhuga á að flytja íslenska tónlist út. „Hann stóð á fimmtugu þegar hann fór að sjá fyrir sér að fá útlendinga til landsins og þannig flytja út böndin. Hann bar þetta upp við Magnús Stephensen, þáverandi markaðsstjóra Icelandair, sem tók vel í það og þaðan fór boltinn svo að rúlla,“ sagði Ólafur Páll í samtali við Vísi fyrir nokkrum árum. „Við verðum að muna eftir þessum hetjum og halda minningunni á lofti. Hvað ef Guðmundur Cesar hefði ekki komið með þessa hugmynd?“ spurði Ólafur Páll, og benti á gríðarlega veigamikið hlutverk Iceland Airwaves í uppgangi íslensks tónlistarlífs undanfarin ár. „Október var steindauður í ferðamannadagatalinu hér á landi í kringum 1999. Nú er það þrautin þyngri að ná herbergi í Reykjavík á þessum tíma“, sagði Ólafur Páll og benti þannig á gífurleg áhrif Iceland Airwaves á ferðaþjónustuna og íslenskt tónlistarlíf.

Fyrstir úr landi vegna hátíðarinnar

Toy Machine var fyrsta íslenska hljómsveitin sem komst út fyrir landsteinana vegna Iceland Airwaves. Sveitin fékk boð frá ASCAP í Bandaríkjunum um að spila á hinum goðsagnakennda klúbbi CBGB´s í New York, sem varð raunin í nóvember 1999. Ekki urðu frekari tilraunir til frægðar og frama erlendis því hljómsveitin hætti árið 2001 vegna ósættis milli meðlima og umboðsmanna. Nánar um það ævintýri síðar.