Enginn ráðherra úr Norðausturkjördæmi
Enginn oddvita stjórnarflokkanna í Norðausturkjördæmi verður ráðherra í nýrri ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, sem tekur við völdum í dag.
Ingibjörg Ólöf Isaksen, Framsóknarflokki, er 1. þingmaður kjördæmisins, Njáll Trausti Friðbertsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er oddviti VG.
Ráðherra í þessu öðru ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur verða 12 en voru 11 í ríkisstjórninni sem lætur af störfum í dag. Kristján Þór Júlíusson var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en er hættur á Alþingi og hverfur úr ríkisstjórn. Nýir ráðherrar eru Willum Þór Þórsson, nýliði á þessum vettvangi, og Jón Gunnarsson, sem var samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017.
Ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er skipuð sem hér segir:
Ráðherrar Vinstri grænna
- Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins, verður áfram forsætisráðherra.
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson verður félags- og vinnumarkaðsráðherra – var áður umhverfis- og auðlindaráðherra.
- Svandís Svavarsdóttir verður ráðherra matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar – var heilbrigðisráðherra.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks
- Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, verður áfram fjármála- og efnahagsráðherra.
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verður utanríkisráðherra – var ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar.
- Guðlaugur Þór Þórðarson verður ráðherra umhverfis- og loftslagsmála – var utanríkisráðherra.
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir verður ráðherra nýsköpunar, iðnaðar og háskóla – var dómsmálaráðherra.
- Jón Gunnarsson verður dómsmálaráðherra allt að 18 mánuðum og Guðrún Hafsteinsdóttir, nýr oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, tekur síðan við því embætti.
Ráðherrar Framsóknarflokks
- Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, verður innanríkisráðherra – var samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.
- Willum Þór Þórsson verður heilbrigðisráðherra – hefur ekki setið á ráðherrastóli áður.
- Lilja Alfreðsdóttir verður viðskipta- og menningarmálaráðherra – var áður mennta- og menningarmálaráðherra.
- Ásmundur Einar Daðason verður skóla- og barnamálaráðherra – var áður félags- og barnamálaráðherra.
Þá er ljóst að Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, verður forseti Alþingis.