Fara í efni
Menning

Viltu taka þátt í ævintýri á aðventu í Freyvangi?

Aðventuævintýri Freyvangsleikhússins í Eyjafjarðarsveit verður að þessu sinni frumsamið verk eftir Ásgeir Ólafsson Lie. Það nefnist 14. jólasveininn og er leikverk með tónlist og söng.

Hefur þig alltaf langað að taka þátt í leikhúsi? er spurt í tilkynningu frá Freyvangsleikhúsinu. Þar kemur fram að vetrarstarfið hefjist í vikulokin með samlestri og vinnustofu; samlestur verður á verkinu næsta föstudagskvöld klukkan 20.00 og vinnustofa daginn eftir kl. 14.00.

„Þó nokkuð er af hlutverkum í verkinu og eru því allir 12 ára og eldri velkomnir,“ segir í tilkynningunni. 

Facebook síða Freyvangsleikhússins