Úrslitakvöld Fiðrings verður 7. maí í Hofi

Hæfileikakeppnin Fiðringur á Norðurlandi fer fram í fjórða sinn þann 7. maí. Í ár munu tíu skólar af Norðurlandi mætast í Hofi. „Nú tekur Grunnskóli Húnaþings vestra þátt í fyrsta sinn og vonandi taka fleiri skólar frá Norðurlandi vestra þátt á næsta ári því markmiðið er að sinna öllu Norðurlandi frá Borðeyri til Bakkafjarðar,“ segir María Pálsdóttir, hugmyndasmiður keppninnar. Fiðringur er haldinn í fjórða sinn í ár, en hér má lesa umfjöllun á Akureyri.net um uppruna keppninnar, sem hefur fest sig í sessi og er tilhlökkunarefni grunnskólanna á svæðinu ár hvert.
Þátttaka í Fiðringi þjálfar sköpunarvöðva þátttakenda hressilega!
„Nemendur þáttökuskólanna á unglingastigi (8.-10. bekkur), hafa unnið að sínum atriðum alla vorönnina undir handleiðslu leiðbeinanda en mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð,“ segir María. „Hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum, þeir sjá alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi þjálfar sköpunarvöðva þátttakenda hressilega! Það verður spennandi að sjá og heyra afraksturinn í Hofi þar sem ungmennin fá að tjá sig um það sem þeim liggur á hjarta á listrænan hátt.“
Myndir frá Fiðringi 2024. Ljósmyndari: Unnur Anna Árnadóttir
Daniil flytur Fiðringslagið í ár
Úrslitakvöldið í Hofi er mikil veisla, en fyrir utan atriði skólanna er alltaf einn listamaður sem mætir og skemmtir á meðan dómararnir ráða ráðum sínum eftir flutning atriðanna. „Fiðringslagið er valið af nemendum, en í ár kusu þau lagið Hjörtu með Daniil sem mætir á svæðið og skemmtir áhorfendum,“ segir María. Kynnar keppninnar í ár eru MA-ingarnir Hákon Snorri Rúnarsson og Vilté Petkuté en þau tóku bæði þátt uppfærslu LMA á Galdrakarlinum í Oz á dögunum.
Í dómnefnd sitja Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri Leikfélagsins á Akureyri, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir dansari og kennari og París Anna Bergmann fulltrúi Ungmennaráðs Akureyrar. Eyrún Huld Haraldsdóttir íslenskukennari í MA metur hvaða skóli notar íslenska tungumálið á mest skapandi og skemmtilegan hátt og sérstök verðlaun verða veitt fyrir það.
Sigurvegarar Fiðrings í fyrra voru frá Borgarhólsskóla á Húsavík, en það verður gaman að sjá hver ber sigur úr býtum í ár.
Fyrirkomulag miðasölu á úrslitakvöld Fiðrings er þannig að nemendur í þáttökuskólunum fá senda hlekki frá skólastjóra til að kaupa miða á tix.is og sitja með sínum skóla en almenn miðasala á efra svæðið fyrir aðstandendur og vini fer í sölu 1. maí á tix.is.
Fiðringur á Norðurlandi er áhersluverkefni SSNE í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar að frumkvæði Maríu Pálsdóttur.
Mynd: Unnur Anna Árnadóttir