Fara í efni
Menning

Tvö hundruð og tíu sjúkrabílar Merkels

Gestalistamaður Gilfélagsins í þessum mánuði, Michael Merkel, opnar sýningu á verkum sínum í Deiglunni kl. 19.30 á föstudagskvöldið. Sýningin  verður svo opin á laugardag og sunnudag kl. 14.00 til 17.00. Hún stendur aðeins þessa einu helgi.

„Michael sýnir verk af læknisfræðilegri efnisskrá sinni í Deiglunni,“ segir í tilkynningu frá Gilfélaginu. „Á sýningunni verða teikningar byggðar á segulómunarmyndum (MRI) ásamt stóru safni hans af leikfangasjúkrabílum. Eins og titilinn gefur til kynna eru þetta verk með læknisfræðilegt þema og fjalla um varnarleysi, kreppu og leit að hjálp. Með notkun sinni á óhefðbundnum efnum og ólíkum listrænum nálgunum skoðar listamaðurinn táknmyndir sársauka og þjáningar.“

Michael Merkel er fæddur í borginni Dresden árið 1987. Hann lærði fyrst til myndskera, því næst lagði hann stund á þýskar bókmenntir, menningarfræði og listasögu í Dresden og Wrocław (B.A.). Þaðan lá leið hanns í frekara nám í myndlist við Listaakademíuna í Wrocław, Bauhaus háskólann í Weimar og Listaakademíuna í Dresden (Dipolma, Meisterschüler). Michael hefur unnið að margvíslegum verkefnum í gegn um tíðina og sýnt list sína margoft bæði í Þýskalandi og á alþjóðavettvangi. Merkel hefur hlotið fjölmarga námsstyrki og styrki vegna listrænna verkefna. Hann er einnig hluti af stjórnendahópi GEH8, lista- og menningarmiðstöðvar í Dresden, þar sem hann hefur umsjón með dagskrá og almannatengslum.