Tvennir tónleikar í dag: Jólaperlur Frostrósa
Söngkonurnar Margrét Eir, Hera Björk og Dísella Lárusdóttir verða í aðalhlutverki á tvennum jólatónleikum – Jólaperlum Frostrósa – sem fram fara í Hofi í dag. Þar flytja þær, eins og nafnið gefur til kynna, jólaperlur sem margir þekkja af Frostrósatónleikunum sem haldnir voru í 12 ár samfleytt, frá 2002 til 2013.
„Yfir 30.000 manns sóttu tónleikana árlega þegar mest var og eigum við mörg þaðan ljúfar minningar. Lögin lifa áfram og hvert mannsbarn þekkir lög eins og Dansaðu vindur, Hugurinn fer hærra og Af álfum svo nokkur séu nefnd,“ segir í tilkynningu.
Þar segir að á sviðinu verði umgjörð hin glæsilegasta „og með þeim verða á sviði einvala hljómsveit, strengjasveit, dýrindis kórar og frábærir gestir. Má þar nefna þá Egil Árna tenor og Stefán Hilmarsson.“
Kórar tónleikanna eru Karlakór Akureyrar, Kvennakór Akureyrar, Eldri barnakór Akureyrarkirkju og Raddsveitin Harpa. Tónlistarstjóri er Karl Olgeirsson og leikstjóri Birna Björnsdóttir.
„Þær Heru og Margréti þarf vart að kynna. Þær hafa verið vinkonur í yfir 30 ár og voru þær söngkonur sem oftast heiðruðu svið Frostrósa. Í fyrra voru þær í forgrunni tónleikanna Jól í Eldborg sem slógu rækilega í gegn og verða haldnir aftur í ár. Nú koma þær einnig hingað norður í Hof og í ár bætist Grammy verðlaunahafinn Dísella Lárusdóttir við en hún var einn gesta tónleikanna í fyrra. Dísella kom fram með Frostrósum árin 2008 og 2011 þar sem hún skapaði ógleymanlegt augnablik er hún flutti dúett með Garðari Thór Cortes beint frá New York.“
Örfáir miðar munu óseldir á tónleikana.