Tónverkið „Hver vill hugga krílið?“ í Hofi
Tónverkið „Hver vill hugga krílið?“ verður flutt í Hofi sunnudaginn 27. mars. Verkið, sem er eftir Olivier Manoury, er fyrir barnakór, hljómsveit og sögumann. Manoury samdi það við sögu Tove Jansson í þýðingu Þórarins Eldjárn.
„Ævintýrið segir frá litlum dreng sem býr einn úti í skógi. Hann er mjög feiminn og þorir ekki að vingast við nokkurn fyrr en hann hittir litla stúlku sem er enn hræddari við lífið en hann,“ segir í tilkynningu. „Þá finnur hann kjarkinn og sagan endar á því að þau ákveða að sigla burt á bát með fílifjonkunum. Óttinn víkur fyrir gleði og vináttu. Krílið og Stráið hugga hvort annað, nú hafa þau eignast vin!“
Litríkum myndum Tove Jansson er varpað upp á meðan á flutningi verksins stendur. Verkið tekur um 40 mínútur í flutningi og er við hæfi barna á öllum aldri.
Kórarnir sem syngja eru:
- Barnakórar Akureyrarkirkju – stjórnandi Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
- Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju – stjórnandi Margrét Árnadóttir
Hljómsveitina skipa:
- Olivier Manoury, bandoneon
- Edda Erlendsdóttir, píanó
- Eggert Pálsson, slagverk
- Richard Korn, kontrabassi
Sögumaður er Eyjólfur Eyjólfsson. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson
Verkið var fyrst flutt í Langholtskirkju árið 2019 og í framhaldinu kviknaði sú hugmynd að stækka vekefnið og flytja það víðar með fleiri barnakórum. Það varð úr og verkið var næst flutt á Ísafirði með Barnakór Tónlistarskóla Ísafjarðar, Stúlknakór Tónlistarkóla Ísafjarðar og Graduale Futuri. Þaðan átti leiðin að liggja til Akureyrar, í Skálholt og loks í Hörpu. Af því varð ekki, ekki fyrr en nú tveimur árum síðar.
Tónleikarnir á Akureyri verða í Hofi sunnudaginn 27. mars kl. 14.00. Sunnudaginn 3. apríl verða svo tónleikar í Skálholti þar sem Barnakór Hvolsskóla syngur ásamt Graduale Futuri og þann 21. apríl, Sumardaginn fyrsta verða svo lokatónleikar í Hörpu í samstarfi við tónlistarhátíðina Big Bang. Þar koma norðlensku og sunnlensku kórarnir allir fram. Verkefnið er unnið í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.