Tónleikar Kammerkórs Norðurlands í Hofi
Kammerkór Norðurlands heldur tónleika í Hömrum í Hofi í kvöld kl. 20, þá fjórðu og síðustu í röð jólatónleika um helgina.
Á tónleikunum flytur kórinn, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, verk eftir íslensk og erlend tónskáld. Tónleikarnir á aðventunni 2024 eru annar hluti jólatónleikaþríleiks Kammerkórs Norðurlands. Fyrsti hlutinn var fluttur á aðventunni 2023, segir í tilkynningu frá kórnum.
Kórinn söng bæði í Þorgeirskirkju við Ljósavatn og í Bergi á Dalvík í gær, í dag kl. 14 eru tónleikar í Skúlagarði í Kelduhverfi og síðan í Hömrum í Hofi í kvöld sem fyrr segir.
„Tónleikagestir munu upplifa nánd og gleði jólaandans í fjölbreyttri efnisskrá jóla kórverka og má þar m.a. finna verkin Jól eftir Daníel Þorsteinsson, O Magnum Mysterium e. F. Poulenc, Vitringarnir frá Austurlöndum e. Snorra S. Birgisson, Joseph and the Angel e. Hafliða Hallgrímsson og Gabriel'sMessage í útsetningu Jim Clements.“
Miðar eru seldir við innganginn og miðinn kostar 5000 krónur. Posi er á staðnum og einnig tekið við peningum.