Fara í efni
Menning

Sýning Brynhildar og hreyfi-innsetning Önnu

Brynhildur Kristinsdóttir myndlistarkona heldur sýningu um helgina í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu, og á morgun verður Anna Richardsdóttir með hreyfi-innsetningu á sýningunni.

Sýningin verður opnuð kl 14.00 og stundarfjórðungi síðar hefst gjörningur Önnu.

„Við pössum ekki alltaf inn í formin sem okkur eru úthlutuð,“ segir í tilkynningu um sýninguna. „Í samfélögum manna hafa verið búin til sniðmát og kerfi sem þjóna ekki lengur tilgangi sínum og eru fyrst og fremst að viðhalda eigin tilvist. Þau eru hætt að þjóna bæði mennskunni og jörðinni. Sum okkar kjósa að vaxa eins og rætur í allar áttir á meðan aðrir kjósa beinni brautir. Gjörningur Önnu og geómetrísku verk Brynhildar á sýningunni vísa til mennskunnar og hugleiðinga um skelina og efnið. Hvað er fyrir innan hvað er fyrir utan og hvernig viljum við vaxa.“

  • Sýningin er opin á morgun, laugardag 21. september, frá kl 14.00 til 17.00. Gjörningur hefst kl. 14.15.
  • Á sunnudag er einnig opið kl. 14.00 til 17.00.