Fara í efni
Menning

Síðasta upphitun fyrir MBS tónlistarhátíðina

Þriðju og síðustu upphitunartónleikar fyrir tónlistarhátíðina Mannfólkið breytist í slím verða á Akureyri Backpackers í kvöld.

Mannfólkið breytist í slím er hátíð utan meginstrauma sem haldin hefur verið árlega af listateymisins MBS síðan 2018. „Sérstök áhersla er lögð á listafólk úr héraði og fjölbreytni atriða með markmiðið að koma hreyfingu á tónlistarsenuna norðan heiða og hrista upp í menningarlandslaginu,“ segir í tilkynningu.

Aðalviðburður hátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím fer fram að Óseyri 25. - 27. júlí.

Á þessum síðustu upphitunartónleikum hátíðarinnar leiða saman hesta sína kraftrokksveitin The Validations, sem skipuð er tveimur Akureyringum en hefur hingað til aðallega gert út frá þýsku höfuðborginni Berlín, auk raftónlistarmannsins Áka Frostasonar sem fram kemur undir skáldanafninu Pitenz en hann býr og starfar í Vordingborg í Danmörku. „Ástsælasti plötusnúður Eyjafjarðar, hinn margrómaði Vélarnar slær svo botninn í tunnuna auk þess að halda uppi stemningu milli atriða.“

Röð atriða á upphitunartónleikunum í kvöld er þessi:

  • 21:30 The Validations
  • 22:15 Pitenz
  • 23:00 Vélarnar

Upphitunartónleikarnir á Facebook

Mannfólkið breytist í slím – aðalviðburður

MBS á veraldarvefnum

MBS á Instagram

MBS á Facebook

Samstarfs- og styrktaraðilar MBS 2024 eru: Akureyrarbær, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE, KEA, Tónlistarsjóður, Segull 67, HS Kerfi, Prentmet Oddi, Akureyri Backpackers, Aflið & Rás 2.