Pétur semur leikrit með lögum Bjartmars
Í fylgd með fullorðnum er nýtt leikrit eftir Pétur Guðjónsson sem Leikfélag Hörgdæla mun frumsýna í mars á næsta ári. Leikritið fjallar um Birnu sem stendur á tímamótum í lífinu. Það má segja að seinni hálfleikur blasi við. Hún lítur um öxl og ýmislegt kemur í ljós og margt er þar óuppgert. Birna segir okkur söguna af sjálfri sér, foreldrunum Krissý og Sumarliða og fyrstu ástinni honum Engisprettu-Haraldi.
Sagan er í senn drepfyndin, grátbrosleg, dramatísk og sorgleg en líka bráðfjörug.
Eins og nafnið gefur til kynna er leikritið byggt á tónlist Bjartmars Guðlaugssonar, en Pétur hefur borið þá hugmynd með sér um alllangt skeið að skrifa leikrit með tónlist hans. Frumsýning 2022 er engin tilviljun því það ár verður Bjartmar sjötugur og sýningin sett upp honum til heiðurs.
Pétur Guðjónsson er eigandi Draumaleikhússins og hefur í gegnum tíðina skrifað leikrit, ýmist einn eða með öðrum. Auk þess sinnir hann leikstjórn, kennslu, stuttmyndagerð og viðburðastjórnun.
Áheyrnarprufur fyrir „Í fylgd með fullorðnum“ verða fyrstu vikuna í desember og verður óskað eftir leikurum á öllum aldri.
Meðal laga sem eru í sýningunni eru: Týnda kynslóðin, Bissí Krissí, Ljóð um þig, Þegar þú sefur, Með vottorð í leikfimi og Þannig týnist tíminn.
Höfundur leikritsins, Pétur Guðjónsson, verður leikstjóri.
Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður.