Fara í efni
Menning

Ein með öllu: viltu biðja um óskalag í kvöld?

Ívar Helgason, Óskar Pétursson og Eyþór Ingi Jónsson koma fram á Óskalagatónleikum í Akureyrarkirkju í kvöld. Þar hefur gleðin verið við völd síðustu ár.

Árlegir óskalagatónleikar verða í Akureyrarkirkju í kvöld, föstudagskvöld, sem hluti af fjölskylduhátíðinni Einni með öllu. Þar koma fram söngvararnir Óskar Pétursson og Ívar Helgason og hljóðfæraleikarinn Eyþór Ingi Jónsson.

Ein með öllu hefst á Akureyri í dag og stendur til sunnudags. Henni lýkur að vanda með svokölluðum sparitónleikum á flötinni neðan við Samkomuhúsið og veglegri flugeldasýningu í kjölfarið.

  • Fyrir utan skemmtistaðinn Vamos á Ráðhústorgi var hafist handa í morgun við að heilgrilla skrokk og getur fólk fengið að smakka til kl. 15.00.
  • Á torginu verða einnig matarvagnar og markaðsstemning þar sem hægt verður að gera góð kaup á alls kyns munum, segir í tilkynningu frá Einni með öllu.
  • Hlaupahátíðin Súlur Vertical hefst kl. 16.00 í dag, eins og Akureyri.net greindi frá í morgun með krakkahlaupi í Kjarnaskógi.
  • Tvö tívolí hafa verið opnuð á flötinni neðan við Samkomuhúsið 

Glatt á hjalla í kirkjunni

„Vinirnir þrír vinna náið saman allt árið, oftast við erfiðar aðstæður en um verslunarmannahelgi á hverju ári sleppa þeir sér aðeins og gera að gamni sínu um leið og þeir flytja óskalög tónleikagesta,“ segir í tilkynningu um óskalagatónleikana. „Tónleikagestir fá í hendur mjög langan lagalista og hægt er að kalla upp þau lög sem tríóið á að flytja. Mikið líf og fjör hefur einkennt þessa tónleika í gegn um árin, en óskalagatónleikar hafa verið haldnir í Akureyrarkirkju með einum eða öðrum hætti í hátt í 20 ár.“

  1. Að morgni
  2. Afgan
  3. Aldrei einn á ferð
  4. Alparós
  5. Allt mitt líf
  6. Always on my mind
  7. Amazing Grace
  8. Amigos Para Sempre
  9. Augunþín
  10. Augun þín blá
  11. Á heimleið (Lýsa geislar….)
  12. Á hörpunnar óma
  13. Á minn hátt (My way)
  14. Ást
  15. Ást, ást, ást
  16. Ást við fyrstu sýn
  17. Átján rauðar rósir
  18. Barn
  19. Bíddu pabbi
  20. Bíllinn minn og ég
  21. Blátt lítið blóm eitt er
  22. Bláu augunþín
  23. Blíðasti blær
  24. Blærinn í laufi
  25. Braggablús
  26. Brú yfir boðaföllin
  27. Caprí Catarína
  28. Dagný
  29. Dalakofinn
  30. Dans gleðinnar
  31. Draumalandið
  32. Dvel ég í draumahöll
  33. Ef þú ert mér hjá
  34. Eina nótt (Láttu mjúkra…)
  35. Einbúinn
  36. Einsi kaldi úr Eyjunum
  37. Einu sinni á ágústkvöldi
  38. Elskaþig
  39. Enn syngur vornóttin
  40. Erla, góða Erla
  41. Esjan
  42. Ég elska þig enn
  43. Ég er á leiðinni
  44. Ég er kominn heim
  45. Ég fer í nótt
  46. Ég leitaði blárra blóma
  47. Ég lít í anda liðna tíð
  48. Ég minnist þín (Danny boy)
  49. Ég sé Akureyri
  50. Ég sé þig
  51. Ég syng þennan söng
  52. Ég vaki yfir þér (Caruso)
  53. Ég veit þú kemur
  54. Ég vil fá mér kærustu
  55. Fallegur dagur
  56. Fiskurinn hennar Stínu
  57. Fjöllin hafa vakað
  58. Fly me to the moon
  59. Fram í heiðanna ró
  60. Friðarhöfn
  61. Feeling good
  62. Frostrósir
  63. Fröken Reykjavík
  64. Fyrir átta árum
  65. Garún
  66. Glaðasti hundur í heimi
  67. Glugginn
  68. Góða ferð
  69. Góða nótt
  70. Gras
  71. Grænkandi dalur
  72. Gullvagninn
  73. Gömul spor
  74. Hafið lokkar og laðar
  75. Hagavagninn
  76. Hallelujah
  77. Hamraborgin
  78. Have you ever seen the rain
  79. Heim í Búðardal
  80. Heima
  81. Here comes the sun
  82. Heyr mína bæn
  83. Heyr mitt ljúfasta lag
  84. Hin gömlu kynni gleymast ei
  85. Hlíðin mín fríða
  86. Hótel jörð
  87. Húmar að kvöldi
  88. Hún hring minn ber
  89. Húsið og ég
  90. Hvað með það
  91. Hvert örstutt spor
  92. Island in the sun
  93. Í blómabrekkunni
  94. Í fjarlægð
  95. Í rökkurró
  96. Í síðasta skipti
  97. Í sól og sumaryl
  98. Ísland er land þitt
  99. Kannski er ástin
  100. Kom, vornótt og syng
  101. Kvæðið um fuglana
  102. Kveðja (Bubbi)
  103. Kveðja heimanað
  104. Kveðjustund
  105. Kvöld í Moskvu
  106. Kvöldið er fagurt
  107. Kvöldsigling
  108. Kærleikur og tími
  109. La donna e mobile
  110. Leiðin okkar allra
  111. Liljan
  112. Lindin
  113. Litlaflugan
  114. Litla sæta ljúfan góða
  115. Líttu sérhvert sólarlag
  116. Ljósið á kertinu lifir
  117. Loksins ég fann þig
  118. Love me tender
  119. Mærin frá Mexíkó
  120. Maístjarnan
  121. Mamma (Björgvin Þ)
  122. Mamma (Friðrik Ómar)
  123. Manstu ekki eftir mér
  124. María Ísabel
  125. Með bæninni kemur ljósið
  126. Með þér
  127. Megi gæfan þig geyma
  128. Minning (Bó/Mugison)
  129. Minning um mann
  130. Minning þín
  131. Móðurást
  132. My way
  133. Nessun dorma
  134. Nína
  135. Nocturne (Hjúfra þig nær)
  136. Nótt
  137. Nú andar suðrið
  138. Nú kveð ég allt
  139. Nú sefur jörðin
  140. Næturljóð úr Fjörðum
  141. O sole mio
  142. Orðin mín
  143. Ort í sandinn
  144. Ó, borg, mín borg
  145. Ó, pabbi minn
  146. Ó, þú
  147. Óbyggðirnar kalla
  148. Ólýsanleg
  149. Ramóna
  150. Reyndu aftur
  151. Rósin
  152. Sailing
  153. Sem lindin tær
  154. Sestu hérna hjá mér
  155. Sigling
  156. Sigling inn Eyjafjörð
  157. Siglt í norður
  158. Sigurstund
  159. Silfrað hár
  160. Síldarvalsinn
  161. Sjá, dagar koma
  162. Sjómannavalsinn
  163. Skákóða kona
  164. Skín við sólu Skagafjörður
  165. Skýið
  166. Smaladrengurinn
  167. Smávinir fagrir
  168. Slá í gegn
  169. Sofðu (Schubert)
  170. Sofðu rótt (Brahms)
  171. Spönsku augun
  172. Sprettur
  173. Stingum af
  174. Stolt siglir fleyið mitt
  175. Suður um höfin
  176. Sumar er í sveitum
  177. Svarfaðardalur
  178. Svefnljóð
  179. Söknuður
  180. Söngur dýranna í Týrol
  181. Söngur um lífið
  182. Til eru fræ
  183. Time to say goodbye
  184. Tondeleyó
  185. Traustur vinur
  186. Tvær stjörnur
  187. Týnda kynslóðin
  188. Umvafinn englum
  189. Undir bláhimni
  190. Undir Dalanna sól
  191. Vegbúinn
  192. Vegir liggja til allra átta
  193. Vetrarsól
  194. Við eigum samleið
  195. Við gengum tvö
  196. Vikivaki
  197. Viltu með mér vaka í nótt
  198. Vor í Vaglaskógi
  199. Vorkvöld í Reykjavík
  200. What a wonderful world
  201. The Wonder of you
  202. Yndislegt líf
  203. Það er gott að elska
  204. Það er svo margt
  205. Það er svo ótal margt
  206. Það geta ekki allir verið gordjöss
  207. Það þarf fólk eins og þig
  208. Þannig týnist tíminn
  209. Þitt fyrsta bros
  210. Þórður
  211. Þótt þú langförull legðir
  212. Þrek og tár
  213. Þú átt mig ein
  214. Þú eina hjartans yndið mitt
  215. Þú ert yndið mitt yngsta…
  216. Þú gætir mín
  217. Þú komst í hlaðið
  218. Þú styrkir mig
  219. Ætti ég hörpu
  220. Ökuljóð
  221. Ömmubæn
  222. Ömmuknús