Meiri Mysingur við Listasafnið á morgun
Tónleikaröðin Mysingur heldur áfram í mjólkurporti Listasafnsins á Akureyri á morgun, laugardaginn 16. júlí, klukkan 17.00.
„Fram koma Drinni, Áslaug Dungal og Holy Hrafn. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana. Hægt verður að kaupa grillmat og drykki frá Ketilkaffi á tónleikasvæðinu,“ segir í tilkynningu frá Listasafninu.
„Drinni er best þekktur sem höfuðpaur hljómsveitarinnar „Drinna & the Dangerous Thoughts”, en kemur að þessu sinni fram einn með kassagítarinn og leikur tilfinningaríkan beinagrindablús. Áslaug Dungal er draumpoppari og nemandi í tónsmíðum við LHÍ og gaf út sína fyrstu stuttskífu í janúar á þessu ári. Holy Hrafn var upphaflega þekktur sem rappari, en hefur í auknum mæli snúið sér að mannbætandi blæjubílatónlist.
Þriðji og síðasti tónleikadagurinn er 27. ágúst næstkomandi. Tónleikaröðin er samstarf Akureyrarbæjar, Ketilkaffis, Geimstofunnar, Listasafnsins á Akureyri, Kjarnafæðis og Kalda.“