Fara í efni
Menning

Mannlíf – ÁLFkonur opna sýningu í Lystigarðinum

Ein myndanna á sýningunni í Lystigarðinum. Ljósmyndarinn er Margrét Elfa Jónsdóttir.

ÁLFkonur hafa opnað ljósmyndasýninguna Mannlíf við kaffihúsið LYST í Lystigarðinum á Akureyri.

Þetta er í þrettánda sinn sem ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús, bjóða upp á ljósmyndasýningu við útisvæðið og veitingasöluna í garðinum. Að þessu sinni eru það Norðurorka og Menningarsjóður Akureyrar sem styrkja ÁLFkonur til sýningarinnar og stuðla þannig að ríkulegu menningarlífi í Lystigarðinum, að því er segir í tilkynningu.

Á sýningunni núna takast ÁLFkonur á við mannlíf og fjölbreytileg viðfangsefni fólks í hinu bjarta norðri.

ÁLFkonur er félagsskapur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli og hefur starfað saman sem hópur frá árinu 2010. Þær hafa haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi.

Að þessu sinni eru þátttakendur: Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Gunnlaug Friðriksdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.

https://www.facebook.com/alfkonur
https://www.instagram.com/alfkonur/