Menning
Lokanir gatna vegna Akureyrarvöku
30.08.2024 kl. 09:15
Helstu lokanir gatna sem gilda frá kl. 11 í dag til hádegis á sunnudag vegna viðburða á Akureyrarvöku.
Akureyrarbær hefur auglýst lokanir gatna í dag og næstu daga vegna viðburða á Akureyrarvöku. Þá hvetja skipuleggjendur Akureyrarvöku gesti eindregið til að nýta aðra samgöngumáta að svæðinu og minna á að fátt er hollara en góð gönguferð.
Lokun föstudaginn 30. ágúst kl. 21:30-23:45
- Vegna Draugaslóðar á Hamarkotstúni verða hlutar Þórunnarstrætis, Hamarstígs og Byggðavegar lokaðir fyrir umferð ökutækja kl. 21:30-23:45, en þó geta íbúar og neyðaraðilar ekið um Þórunnarstræti og hluta Hamarstígs (grænt á kortinu neðar í fréttinni).
- Gestum Draugaslóðar er bent á að nýta sérstök bílastæði sem verða á tjaldsvæðisreitnum við Þórunnarstræti (sjá mynd) á sama tíma (gult á kortinu neðar í fréttinni). Umferðarstýring inn á svæðið verður í höndum björgunarsveitarfólks frá Súlum.
Eftirfarandi lokanir taka gildi kl. 11 í dag, föstudag, og vara til hádegis á sunnudag:
- Kaupvangsstræti (Listagilinu) verður lokað fyrir neðan Eyrarlandsveg og niður að Hafnarstræti.
- Ráðhústorg
- Skipagata frá Ráðhústorgi að Hofsbót
- Strandgata frá Ráðhústorgi að Geislagötu
- Túngata frá Bankastíg að Ráðhústorgi
- Göngugötuhluti Hafnarstrætis verður lokaður eins og verið hefur
Helstu bílastæði við hátíðarsvæði:
- Menningarhúsið Hof
- Ráðhúsið
- Skipagata
- Hofsbót
- Íþróttahöllin
- Kaupvangur
- Berjaya Akureyri hótel
- Neðan við Rósenborg
- Sundlaug Akureyrar
- Menntaskólinn á Akureyri
Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðunum.