Menning
Karen Ósk sendir frá sér fyrstu smáskífuna
18.10.2022 kl. 12:22
Söngkonan Karen Ósk Ingadóttir, 21 árs Akureyringur, kom fram á sjónarsviðið fyrir um ári þegar hún söng lagið Haustið með Friðriki Dór – sem segja má að hafi slegið í gegn.
Hjólin hafa snúist hratt síðan, Karen Ósk skrifaði undir samning við útgáfufyrirtækið Öldu og fyrr en í þessum mánuði kom út fyrsta smáskífa hennar; fimm laga platan Svífum.
Platan er á streymisveitunni Spotify. Smellið hér til að hlusta.