Fara í efni
Menning

Jonathan Smith opnar sýningu í Deiglunni

Jonathan Smith gestalistamaður Gilfélagsins í júlí opnar sýningu í Deiglunni kvöld, föstudag 26. júlí, kl.19.30. Sýningin stendur yfir helgina 27. og 28. júlí og er opin frá 14 - 17 báða dagana. Aðeins þessi eina sýningarhelgi.

Á sýningunni er eitt stórt málverk, meira en 5 metrar að lengd, af Akureyri og umliggjandi landsvæði, og einþrykk frá stór Akureyrarsvæðinu., að því er fram kemur í tilkynningu. „Málverkið sameinar óhlutbundið landakortamyndefni frá þremur sjónarhornum sem sameinast í einu myndverki. Einþrykkin sýna hinsvegar ýmsa staði á Akureyri sem vöktu athygli listamannsinns á ferð hans um bæinn.“

Jonathan er frá Boston í Massachusetts ríki Bandaríkjanna. Hann nam myndlist til BA gráðu við University of New Hampshire og hlaut meistaragráðu frá City University of New York, Brooklyn College. Hann hefur búið á Boston svæðinu undanfarin 35 ár, þar sem hann kennir málun í framhaldsskóla grafík og teikningu. Hann heldur úti vinnustofu í Concord, Massachusetts og hefur sýnt verk sín á fjölmörgum stöðum í og umhverfis Boston.

„Jonathan Smith býr til óhlutbundin málverk byggð á landakortum og gervihnattamyndum. Hann var hrifinn af kortum, atlösum og Landsat-ljósmyndum frá unga aldri en fyrsta tilraun hans með myndmál kortanna var seint á níunda áratugnum þegar hann var í framhaldsnámi. Í nýjustu mynd-röð sinni, The Look of Our Land, hefur hann þróað verkin með því að nota aðferð sem sameinar tvær ólíkar kortamyndir - önnur á þunnum hrísgrjónapappír sem verður gegnsær við samrunann, hin á þyngra efni (við), plötu eða þungan pappír. Hann þróar síðan áfram þessar myndir með því að nota þunn, gagnsæ litalög (gljáa) og býr þannig til áhrif sem minna á gler eða gimsteina. Skásettar línur skera í gegnum bútasaum af litum sem grunnur að heildarverkinu.“