Jólatónleikar Guðnýjar Árnýjar í Glerárkirkju
Guðrún Árný heldur jólatónleika í Glerárkirkju á Akureyri annað kvöld en í kvöld er hún í Siglufjarðarkirkju. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Söngkonan gaf á dögunum út jólaplötuna Notaleg jólastund og fylgir henni eftir með tónleikum víða um land. Hún hefur þegar komið fram fyrir sunnan og austan, tónleikar í heimabæ hennar, Hafnarfirði, eru á dagskrá næsta sunnudag og túrnum líkur 18. desember í Ísafjarðarkirkju.
„Nú er langþráður draumur loks að rætast. Fyrir jólatónleikana 2023 langaði mig að fá lítinn kór og strengjakvartett. Komið var að fyrstu æfingu, allt mjög vanir og færir listamenn. Ég var með ákveðnar vonir og væntingar, en mig hefði aldrei órað fyrir því að útkoman yrði þessi,“ segir Guðrún Árný um plötuna.
Margra ára undirbúningur
Guðrún Árný gaf út sólóplötu árið 2007, hefur sungið inn á fjölda annarra hljóðrita en þessi plata er ástríðu verkefni, að hennar sögn. „Undanfarin ár hef ég tekið upp jólatónleikana mína í Víðistaðakirkju,“ segir söngkonan. „Ár eftir ár hef ég viljað gera örlítið betur, bæta við og laga og þannig má segja að þessi plata hafi verið nokkur ár í undirbúningi og vinnslu. Það var svo í janúar og febrúar í ár þegar ég fór að hlusta á upptökurnar frá því um jólin í fyrra að ég hugsaði, já þetta er komið.“
Guðrún Árný á æfingu með kór Siglufjarðarkirkju í nóvember þegar hún þeystist um landið til að undirbúna tónleikaröðina.
Á plötunni eru þrettán jólalög og sálmar sem Guðrún Árný valdi sérstaklega og „hún nálgast verkefnið af mikilli natni og virðingu við tónlistina,“ segir í tilkynningu. „Þessi lög þýða öll eitthvað fyrir mig. Þetta eru lög sem ég og mjög mörg eru alin upp við. Lög frá Ellý Vilhjálms eru mér sérstaklega hugleikin, svo er þarna fallegt lag sem bróðir minn samdi um jólahefðir fjölskyldunnar okkar þegar við vorum að alast upp, og lag sem ég samdi um sjálf um þennan dásamlega tíma sem desember er.“
Margvísleg verkefni
Guðrún Árný sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 1999 og hefur síðan „fangað hug og hjörtu landsmanna,“ segir í tilkynningu. Söngkonan hefur víða komið við: strax eftir sigurinn var hún farin að vinna við tónlist á Hótel Íslandi, söng í undankeppni Eurovision, Landslaginu og var ein af Frostrósunum. Síðustu ár hefur Guðrún svo sýnt á sér nýja hlið „þar sem hún stýrir singalong eða samsöngspartýum og breytir þar engu hvort um er að ræða starfsmannapartí í miðri viku eða Herjólfsdal um Verslunarmannahelgi. Guðrún Árný útsetur tónlistina, stjórnar upptökum, syngur, spilar á píanó og framleiðir plötuna.“
Sex radda kór syngur með Guðnýju Árnýju á plötunni; söngkonurnar Sigríður Soffía Hafliðadóttir, Særún Rúnudóttir og Sara Gríms og söngvararnir Hafsteinn Þórólfsson, Örn Ýmir Arason og Gísli Magna, sem einnig skrifaði og útsetti raddirnar fyrir kórinn. Strengja kvartettinn sem spilar á plötunni skipa þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir og Hekla Finnsdóttir á fiðluleikarar, Þórdís Gerður Jónsdóttir sem leikur á selló og Kristín Þóra Haraldsdóttir víóluleikar og hún sá um að skrifa og útsetja fyrir strengi.