Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju á ný
Kór Akureyrarkirkju heldur tónleika í kirkjunni annað kvöld, laugardagskvöld; Jólasöngva, sem kórinn getur loks boðið upp á aftur eftir þriggja ára hlé.
Þorvaldur Örn Davíðsson, stjórnandi kórsins, segir mikla eftirvæntingu í hópnum og fjölbreytni mikla í efnisvali. Flutt verður sígild aðventu- og jólatónlist í bland við léttari jólalög en hátíðleikinn mun ráða ríkjum á tónleikunum.
Auk Kórs Akureyrarkirkju syngur eldri barnakór kirkjunnar og einnig Vera Hjördís Matsdóttir, ung sópransöngkona sem vakið hefur mikla athygli. Einnig koma fram hljóðfæraleikararnir Sóley Björk Einarsdóttir, trompetleikari, Emil Þorri Emilsson, slagverksleikari og innanbúðar maðurinn Eyþór Ingi Jónsson organisti.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og aðgangur er ókeypis.