Fara í efni
Menning

Jazzsöngkonurnar Helga Margrét og Vigdís Þóra með tónleika

Vigdís Þóra og Helga Margrét. Mynd: Aðsend

Í Blackbox í Hofi verða tvær jazzsöngkonur, Helga Margrét Clarke og Vigdís Þóra, með tónleika þann 13. júní kl. 20.00. Þær ætla að syngja íslenskar jazzperlur eftir fjölbreytta flóru höfunda á borð við Tómas R. Einarsson, Jón Múla Árnason, Karl Olgeirsson, Marínu Ósk og Sigurð Flosason. Einnig munu þær flytja eigin tónlist fyrir gesti.

„Við kynntumst í tónlistarskóla FÍH og tengdust fyrst og fremst sameiginlegum áhuga á djass tónlist,“ segir Helga Margrét. Einnig höfðum við keimlíkan bakgrunn, komandi báðar úr klassísku tónlistarnámi.“ Söngkonurnar hafa komið reglulega fram á tónleikum meðal annars fyrir fullu húsi á Hinsegin dögum 2023 í Iðnó, haldið jólatónleika og sungið í viðburðum á borð við brúðkaup og skírnir. Á þessum tónleikum munu þær syngja margar af sínum uppáhalds perlum íslensks djass ásamt sínu eigin frumsamda efni.

Vigdís Þóra er söngkona og lagahöfundur. Hún spilaði á þverflautu sem barn en hóf svo klassískt söngnám við Söngskóla Reykjavíkur og síðar Söngskóla Sigurðar Demetz. Eftir að hafa klárað 6. stig sagði hún skilið við sönginn og hóf nám við Háskóla Íslands í mannfræði og listfræði.

Haustið 2020 hóf Vigdís aftur söngnám, þá í rytmískum djasssöng við Tónlistarskóla FíH. Þar fann hún djúpstæða tengingu við djass, blús og sálartónlist ásamt því að fara að semja sjálf sína eigin tónlist. Hún bætti einnig við sig mastersnámi í kennslufræðum við Listaháskóla Íslands með áherslu á tónlistarkennslu. Hún útskrifaðist þaðan vorið 2023.

Vigdís Þóra starfar í dag sem tónmenntakennari og tónlistarkona. Hún hefur verið meðlimur Hamrahlíðarkórsins frá 2011 og tekið þátt í fjölda verkefna með kórnum hérlendis og erlendis, meðal annars með Björk í Cornucopiu tónleikaröðinni í New York og í Evrópu. Hún hefur reglulega komið fram á tónleikum bæði innan og utan veggja FíH. Hún stefnir á framhaldspróf í rytmískum söng vorið 2024. Enn fremur stefnir Vigdís Þóra á útgáfu á sinni eigin tónlist ásamt því að koma sér á framfæri sem bæði söngkona og lagahöfundur.

Helga Margrét Clarke er fædd og uppalin á Akureyri. Hún ólst upp á miklu tónlistarheimili, en foreldrar hennar eru Michael Jón Clarke og Sigurlína Jónsdóttir. Helga Margrét hóf klassískt píanónám þriggja ára við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún lagði tónlistina á hilluna um árabil á meðan hún sinnti háskólanámi. Helga lauk B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2007 og tók síðan meistaragráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands 2013.

Það var ekki fyrr en árið 2013 sem hún fór að semja aftur, syngja og spila með systur sinni í hljómsveitinni Sister Sister en þá kviknaði aftur áhugi á söng og lagasmíðum. Haustið 2020 hóf hún rytmískt söngnám við tónlistarskóla FÍH hjá Jóhönnu Linnet og Margréti Eir.

Helga Margrét hefur verið að koma fram sem söngkona bæði með samnemendum og atvinnutónlistarfólki þar sem hún flytur meðal annars sínar eigin lagasmíðar. Helga stefnir á að útskrifast frá FÍH vorið 2024 og hefja feril sem bæði söngkona og lagahöfundur.

 

HÉR er hægt að fá miða á tónleikana. Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð.