Fara í efni
Menning

Helgi- og ljóðastund í Davíðshúsi á sunnudag

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Ljóð hans verða flutt í tali og tónum í Davíðshúsi sunnudaginn 4. ágúst.
Sunnudaginn 4. ágúst kl. 11.00 verður helgi- og ljóðastund í Davíðshúsi – Davíðsmessa – þar sem listafólkið Birkir Blær, Eyþór Ingi Jónsson og Rakel Hinriksdóttir flytja ljóð Davíðs Stefánssonar í tali og tónum. Séra María G. Ágústsdóttir, starfandi prestur í Glerárkirkju frá 1. ágúst til loka árs, leiðir stutta íhugun út frá kvæðum Davíðs. Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir annast meðhjálparastarf og Haraldur Þór egilsson safnstjóri opnar húsið. 
 
Í kynningu á samkomunni og listafólkinu er vitnað í orð skáldsins í Kvæðinu til fuglanna þar sem meðal annars segir: Sá einn er skáld, sem þögull getur þráð, og þakkað guði augnabliksins náð. 
 
Í mörgum ljóða skáldsins frá Fagraskógi er að finna trúarleg stef, trúarglímu og andlega leit, en líka trúartraustið sem ber andann uppi á náðarstund í návist guðs, eins og Davíð orðar það sjálfur í sama kvæði.
 
Davíð Stefánsson á einn sálm í sálmabók þjóðkirkjunnar sem ber heitið Á föstudaginn langa og óhætt er að segja að við þekkjum flest með lagi Guðrúnar Böðvarsdóttur. Í eldri sálmabókum voru fimm erindi þessa magnaða trúarljóðs en átta erindi eru birt í nýju sálmabókinni. Þar á meðal er þetta:
 
Þú ert hinn góði gestur
og Guð á meðal vor,
og sá er bróðir bestur
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.


Um listafólkið

Birkir Blær er 24ra ára tónlistarmaður frá Akureyri, en hann hefur verið búsettur í Stokkhólmi undanfarin ár. Hann er söngvari, lagasmiður, hljóðfæraleikari og pródúsent. Hann vill ekki festa tónlistina sína í einum ákveðnum flokki, heldur fær hann innblástur úr öllum áttum en allra helst frá soul, blues og r&b. Birkir er reyndur tónlistarmaður, hefur haldið ótal tónleika og komið fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónlistarhátíðum. Hann hefur gefið út tónlist sem hefur nú verið streymt tæplega sex milljón sinnum á Spotify. Hann er sennilega þekktastur fyrir að hafa unnið sænsku Idol keppnina árið 2021. Birkir starfar nú sem tónlistarmaður bæði á Íslandi og í Svíþjóð.
_ _ _

Eyþór Ingi Jónsson er auk þess að vera organisti við Akureyrarkirkju, sjálfstætt starfandi tónlistarmaður við fjölbreytt tónleikahald og stjórnandi Hymnodiu. Hann stundar einnig náttúruljósmyndun, fuglamerkingar og fræðslu um fugla af mikilli ástríðu.
_ _ _

Rakel Hinriksdóttir fæddist á Húsavík og ólst upp á Laugum í Reykjadal. Rakel er með menntun í grafískri hönnun frá University of Bridgeport USA. Hún útskrifaðist frá Mennaskólanum á Akureyri. Rakel er fjölmiðlakona, skáld og listakona og hefur unnið að gerð spjallþátta fyrir N4 á Akureyri. Hún vinnur nú að félagsstörfum fyrir öldrunarheimilið Hlíð á Akureyri og sem blaðamaður á Akureyri.net. Rakel býr á Eyrinni á Akureyri með tveimur sonum sínum og tveimur kisum og hefur gefið út þrjár ljóðabækur. Fyrsta bókin hennar kom út árið 2020 og heitir Aðstandandi. Þar yrkir hún um þá sáru reynslu hvernig það er að missa sinn nánasta. Tveimur árum seinna kom út ljóðabókin Andleg algebra og 2023 ljóðabókin Hringfari.
_ _ _

María Guðrúnar Ágústsdóttir starfar sem prestur í Glerárkirkju frá 1. ágúst til áramóta. Hún hefur þjónað á ýmsum stöðum í Reykjavík frá því hún vígðist til prests fyrir rúmum 30 árum, síðustu sjö árin í Grensáskirkju og Fossvogsprestakalli. María ólst upp í Skagafirði og er komin til Akureyrar til að vera nálægt syni sínum og tengdadóttur sem eignuðust sitt fyrsta barn fyrr á þessu ári. Á bernskuheimili hennar hljómaði oft rödd Davíðs Stefánssonar af hljómplötu í eigu föður hennar, síra Ágústar M. Sigurðssonar sem var alinn upp á Möðruvöllum í Hörgárdal. Davíð var góðvinur foreldra hans og gisti oft á prestsetrinu.