Menning
Hátíðartónleikar í Akureyrarkirkju í kvöld
28.12.2022 kl. 09:55
Hátíðartónleikarnir Á hæstri hátíð nú fara fram í Akureyrarkirkju í kvöld, miðvikudagskvöld, og hefjast klukkan 20.00. María Sól Ingólfsdóttir sópran, Snæbjörg Gunnarsdóttir sópran og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari flytja fjölbreytta dagskrá með íslenskum hátíðarlögum, söngleikjaslögurum, einleiksverkum á píanó, óratóríum og óperuaríum.
Miðaverð er 3.500 en aðgangur er ókeypis fyrir 12 ára og yngri. Í tilkynningu er tekið fram að posi verði á staðnum og því hægt að greiða með korti.