Fara í efni
Menning

Grenivík: útgáfuhóf og bókabúð opin í dag

Óvenjuleg og afar áhugaverð bókaverslun verður starfrækt á Grenivík þrjár klukkustundir síðdegis í dag og þar munu ungir rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum.

Rithöfundarnir ungu eru nemendur í 5., 6. og 7. bekk Grenivíkurskóla. Þeir hafa undanfarnar vikur skrifað bækur undir leiðsögn kennara sinna; hver nemandi skrifaði eina bók og að auki kemur út ein með viðtölum nemenda við fólk af eldri kynslóðinni.

„Þetta er einstakur viðburður sem á sér engan líkan í skólastarfi hér á landi,“ segir í auglýsingu frá skólanum í nafni bókaútgáfu sem kölluð er Þengilhöfði. 

Nemendur lesa upp úr verkum sínum í dag á áðurnefndum viðburði sem verður í skólanum frá klukkan 16.00 til 19.00. Þeir bjóða einnig upp á tónlistaratriði og aðrar uppákomur. Bækurnar verða vitaskuld til sölu, einnig textaverk, tækifæriskort og jólamerkimiðar.

Ágóði af sölunni rennur til Velferðarsjóðs Eyjafjarðar
 
„Ekki verður allt til sölu,“ segir í áðurnefndri tilkynningu, „því gestir geta nefnilega sest niður á notalegu kaffihúsi sem opið verður í skólanum og gætt sér á ljúffengum smákökum, kaffi og kakó með rjóma.“