Fara í efni
Menning

GLUGGINN í Hafnarstræti helgaður sjómennsku

Systurnar Brynja og Áslaug Harðardætur Tveiten. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Eitt óvenjulegasta listagallerí bæjarins, GLUGGINN, er staðsett við Hafnarstræti 88, þar sem systurnar Brynja Harðardóttir Tveiten og Áslaug Harðardóttir Tveiten hafa sett upp sýningar í formi gluggainnsetningar. Glugginn er í hentugri hæð, og hentar bæði börnum og fullorðnum, en síðasta innsetning systranna var innblásin af Barnamenningarhátíð. Næst verða það hetjur hafsins sem veita þeim innblástur.

Sjómennskan er ein af undirstöðum samfélagsins. Hún er áhrifavaldur sem rennur í blóði okkar allra

Sýningin ber heitið Sjómennska, sviti og salt, og er helguð sjómennsku eins og nafnið gefur til kynna. Fyrir innan GLUGGANN er vinnustofa Brynju, en hún er myndlistarkona. Systir hennar Áslaug rekur skrautmuna- og vintage-söluna Fröken Blómfríður. Viðfangsefnið er þeim hugleikið en þær eru sjómannsdætur, ólust upp við sjóinn á Árskógssandi. „Þarna snerist tilveran, líf, leikir og störf að mestu um fiskveiðar og fiskvinnslu,“ segja systurnar í fréttatilkynningu. Sýningin hefst formlega á Sjómannadaginn og stendur út júní. Um gluggasýningu er að ræða og er því aðgengileg allan sólarhringinn. „Við reiknum með að klára að raða í gluggann í dag og það má endilega líta við á kosningadaginn!“ segir Brynja.

 


Það er skondið að fylgjast með þeim systrum raða í gluggann, það er samblanda af bendingum og köllum - en þó virðast þær vinna svolítið eins og einn hugur. Mynd RH


„Sjómennskan er ein af undirstöðum samfélagsins. Hún er áhrifavaldur sem rennur í blóði okkar allra og án hennar værum við og samfélagið eitthvað allt annað“ segja þær systur. „Sjómennskan hefur bæði tekið og gefið og gerir enn. Með innsetningunni viljum við fagna sameiginlegum menningararfi okkar og öllum þeim sem stunda sjómennsku í dag og störf henni tengdri. Okkur finnst líka yndislegt að leggja okkar af mörkum við að gæða sjómannadaginn í ár lífi og láta hann bergmála út júní“.

Í fréttatilkynningu segir um galleríið:

  • GLUGGINN sýnir samsafn gamalla muna sem koma héðan og þaðan og hafa þjónað tilgangi sínum vel. Sem dæmi má nefna bússur, brýni, snjáða vasahnífa og ljósmyndir.
  • Systurnar taka sér skáldaleyfi og blanda óhikað saman hlutum frá mismunandi tímum og stilla upp í nýtt samhengi. Markmið þeirra er að gera GLUGGANN skemmtilegan, áhugaverðan og vekja upp jákvæðar tilfinningar og hugrenningartengsl.
  • Þær lýsa innsetningunni sem n.k. svipmynd sem vegfarendur og áhorfendur ráða sjálfir hvað varir lengi, allt eftir því hversu hratt er farið hjá.

Mynd tekin í gegn um gluggann fína, en hér má líta nestiskassa sjómannsins. Mynd RH