Fara í efni
Menning

Frítt á tónleika Unu Torfa í Hofi

Una Torfa verður með tónleika í Hömrum í Hofi fimmtudaginn 29. júní. Frítt inn.
Söngvaskáldið Una Torfa heldur tónleika í Hömrum í Hofi fimmtudaginn 29. júní kl. 17. Frítt er á tónleikana og gildir einfaldlega fyrstur kemur, fyrstur fær.
 
Tónleikarnir eru hluti af og styrktir af Listasumri og kemur Una ýmist fram ein, í dúett með rafmagnsgítarleikara eða með hljómsveit og tónleikar verða að sögustund, eins og segir í frétt Menningarfélags Akureyrar um tónleikana. Hún kemur fram ásamt gítraleikaranum Haffa Caeasetone.
 
Á vef Menningarfélags Akureyrar segir einnig um Unu og list hennar:
 
Söngvaskáldið Una Torfa er fædd árið 2000. Una semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið og gaf hún út sína fyrstu plötu í júní árið 2022. Textar Unu eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.
 
Á liðnu ári hefur Una komið víða fram, sem dæmi má nefna tónleika hennar í Iðnó á Iceland Airwaves, framkomur í Vikunni með Gísla Marteini við þrjú tilefni og fjölmörg önnur gigg. Una Torfa hlaut Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína Flækt og týnd og einmana.