Fara í efni
Menning

Freyja Reynisdóttir sýnir í Einkasafninu

Freyja Reynisdóttir opnar sýninguna Atarna - Yonder í Einkasafninu í Eyjafjarðarsveit á morgun, laugardag.

Freyja, sem býr og starfar á Akureyri, er seinni Sumarlistamaður Einkasafnsins á þessu ári. Hún er fædd 1989, útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2014 og með meistaragráðu í frjálsum listum frá Listaháskóla Íslands 2022.

Sýningin verður opnuð kl. 14.00 á morgun og verður opin til kl. 17.00. Auk þess verður hún opin 28. júlí, 3. og 4. ágúst frá 14.00 - 17.00 alla dagana. Aðgangur er ókeypis og er öllum opin.

„Listferill Freyju hófst með rannsóknum á hlutgerð ó-hluta og hefur einkennst af tilraunum í gegnum ýmsa miðla, allt frá gjörningum og myndbandsinnsetningum til fígúratífra sjálfsmynda. Róandi pastel grunnar brotnir upp með háværum bláum, gulum og rauðum, framsett með „minna er meira“ að leiðarljósi gera listsköpun Freyju Reynisdóttur aðlaðandi og forvitnilega í senn,“ segir tilkynningu frá Einkasafninu.

Þar segir einnig: „Efnisval Freyju er fjölbreytt en hún hefur reynst óhrædd við að læra og kanna mismunandi samsetningar efna til að ná fram tilætlaðri útkomu. Samansoðið glerborð og önnur verk úr járni sem var hluti útskriftarsýningar hennar úr LHÍ, „SEARCHING“ ber þess vitni.“

Fagurfræðin aðeins hálf sagan

„Fagurfræði verkanna segir þó einungis hálfa söguna. Sýningar hennar eru ekki aðeins framsetningar sem notalegar eru að horfa á - þó að innsetning Freyju á sýningunni „GERÐUResque“ í Gerðarsafni árið 2021 hafi vissulega verið undantekning þar á, enda var titill verksins bókstaflega „eitthvað til að horfa á“. Þess í stað tekur hún þátttöku-nálgun í list sinni þar sem markmiðið er að skapa umgjörð utan um mögulegt samtal milli sýningargesta og verkanna sem standa til sýnis. Hún sækist eftir að stilla fram spurningum í stað svara og hvetur þannig til upplifunar, án þess að stjórna því hver hún er eða „á að vera“.

Verk Freyju á undanförnum sýningum hafa ekki aðeins verið í samtali við sýningargesti, heldur einnig við rýmin sem þau hafa verið staðsett í. Hvort heldur með vísbendingum sem beina þátttakendum í einhverja átt sem talist getur verið sú „rétta“ frá einu verki til hins næsta, verk séð úr mismunandi sjónarhornum innan rýmisins eða speglun, tekst Freyju að skapa kraftmikið samspil verka, gesta og rýmis.“

Áður hafa þau Aðalheiður Eysteinsdóttir, Aðalsteinn Þórsson, Arna G Valsdóttir, Brák Jónsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Joris Rademaker, Kristín Reynisdottir og Pétur Magnússon verið Sumarlistamenn, unnið og sýnt í Einkasafninu.

Um sýningarstaðinn segir í tilkynningunni:

Einkasafnið stendur stutt ofan við syðri afleggjara Kristnesvegar, þjóðvegur 822. Það er staðsett í gróðursælum lundi þar sem fjallalækur skoppar um gildrag og listamenn gera sýningar sínar í landinu og í 15 m2 safnhúsinu. Einkasafnið er merkt á Google Maps og einnig eru merkingar á staðnum. u.þ.b. 10 km sunnann Akureyrar. Einkasafnið heldur utan um söfnun Aðalsteins Þórssonar myndlistarmanns á afgöngum lífs hans.