Fara í efni
Menning

Fagnar sex tugum af lífi með sýningu í Deiglunni

Aðalsteinn Þórsson ásamt hjálparkokkum í Deiglunni í gær. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Þórsson um helgina „ sex tugum af lífi,“ eins og það er orðað um uppákomu sem hann stendur fyrir um helgina. „Í tilefni af því hefur hann tekið til afnota fjölnotasalinn Deigluna að Kaupvangsstræti 23 á Akureyri nú um helgina, fyrir uppákomu sýningu og hátíðahöld. Þar gefst gestum og gangandi kostur á að koma, njóta gleðjast og skapa.“

Herlegheitin byrjuðu í gær með sammálun, sem var þáttökugjörningur. Þá var málað 40 fermetra málverk á gólfi Deiglunnar, með þáttöku nokkurra gesta; harðsnúins liðs. „Málað var eftir forskrift svokallaðrar Sammálunar sem var praktíseruð á Tilraunakvöldum í listum, sem Myndlistarfélagið og Gilfélagið stóðu fyrir á árunum 2020 - 2022 og þóttu einkar vel heppnuð. Við trúum því að þetta sé stærsta málverk á Akureyri og þótt víðar væri leitað, nema sýnt verði fram á annað,“ sagði í tilkynningunni.

Verkið hefur nú verið hengt á veggi Deiglunnar og verður sýnt það sem eftir er helgarinnar.

Sýning Aðalsteins verður opnuð kl. 15.00 með léttum veitingum og stendur til kl. 19.00. Á morgun verður sýningin opin frá kl. 15.00 til 18.00 og þá verður kaffi og sætabrauð í boði.

Aðalsteinn býður öll velkomin sem vilja fagna þessu tímamótum með honum eða eingöngu skoða afrakstur skemmtilegs listverkefnis.

  • Aðalsteinn Þórsson er fæddur 1964 á Akureyri. 1989 hóf hann nám í Myndlistaskólanum á Akureyri. Hann lauk MFA námi frá Dutch Artinstitute, ArtEz árið 1998, þá Aki2 í borginni Enchede í Hollandi, Aðalsteinn hefur verið starfandi myndlistamaður síðan. Fyrst í Hollandi en hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 2016. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga, tekið þátt í samsýningum og viðburðum auk þess að vera sýningarstjóri. Aðalsteinn hefur einnig látið að sér kveða í félagsmálum menningarinnar. Megin verkefni hans er þó Einkasafnið, umhverfisverk sem hann starfrækir í gróðurvin í landi Kristness u.þ.b. 10 km. sunnan Akureyrar, auk þess að teikna og mála í frístundum.