Ern eftir aldri á sunnudaginn
Heimildamynd Magnúsar Jónssonar frá 1975, Ern eftir aldri, verður sýnd í Listasafninu á Akureyri kl. 15 á sunnudaginn, 21. maí. Sýning myndarinnar er í tengslum við sýningu Steinunnar Gunnlaugsdóttur, Blóð og heiður, sem nú stendur yfir í Listasafninu.
Heimildamyndin er 27 mínútur að lengd, en að henni lokinni verður listamannaspjall við Steinunni sem Hlynur Hallsson safnsstjóri stýrir.
Ern eftir aldri fjallar um sjálfsmynd þjóðarinnar í tilefni þjóðhátíðarinnar 1974 og þar er spurt: Hvað sameinar þjóðina? Á meðal svarenda spurningarinnar eru þau Eyvindur Erlendsson, Jón Böðvarsson, Þóra Friðriksdóttir, Kristbjörg Kjeld og Sigurður A. Magnússon. Þá flytur Bryndís Schram hagfræðilegan fróðleik og Böðvar Guðmundsson syngur einn af sínum alræmdu söngvum.
Aðgöngumiði að safninu jafngildir aðgangi að sýningu myndarinnar og listamannaspjallinu.