Fara í efni
Menning

Enn er skíma í Listhúsi Ófeigs í Reykjavík

Fjólublátt flauel, Ragnar Hólm 2023

Ragnar Hólm og Sigurdís Gunnars opna sýningu á nýjum olíumálverkum í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg í Reykjavík á morgun, laugardaginn 4. mars kl. 14. Yfirskrift sýningarinnar er Enn er skíma. Þar tefla þau saman ólíkum aðferðum í viðureign við hlið óhlutbundna málverk, eins og það er orðað í tilkynningu.

Ragnar Hólm hefur haldið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis. Málverk hans eru yfirleitt mjög abstrakt expressionísk en málverk Sigurdísar eru afar óræð í leik að birtu og skuggum. Sigurdís er nú aftur farin að mála eftir nokkurra ára hlé frá þeirri iðju.

„Dætur okkar spila báðar íshokkí í meistaraflokki kvenna, hvor með sínu liðinu, og þegar við Ragnar komumst að því að við værum bæði að mála með olíu þá fórum við að tala saman um málverkið og það hefur verið óslitinn orðaflaumur allar götur síðan. Hann átti pantað plássið hjá Ófeigi og bauð mér að taka slaginn og sýna með sér. Þetta hefur ýtt vel við mér þannig að nú er ég farin að mála aftur flesta daga,“ segir Sigurdís um framtakið.

„Það er áhugavert og slungið að tefla saman svo ólíkum stílum en líka mjög skemmtilegt. Málverk Sigurdísar eru dulúðleg og falleg, oft pínu ískyggileg og það rímar vel við allt brjálæðið í þessum nýju olíumálverkum sem ég sýni núna,“ segir Ragnar Hólm.

Sýningin í Listhúsi Ófeigs verður opin á afgreiðslutíma Gullsmiðju Ófeigs á virkum dögum frá kl. 10-18 og um helgar frá kl. 11-16. Sýningin Enn er skíma stendur til 25. mars nk.

www.facebook.com/sigurdisart

www.facebook.com/ragnarholm.art/

Eitt verka Sigurdísar á sýningunni í Listhúsi Ófeigs.

Fjólublátt flauel, Ragnar Hólm 2023