Fara í efni
Menning

„Ég er frjáls“ – Rifti Universal samningnum

Birkir og Rannveig eru ánægð í Stokkhólmi og finnst gott að búa þar. Mynd: aðsend

Tónlistarmaðurinn Birkir Blær Óðinsson hefur verið búsettur í Stokkhólmi í Svíþjóð, en hann hefur haft í nægu að snúast eftir að sigra í sænsku Idol söngkeppninni árið 2021. Hluti af því að vinna keppnina, sem er ofboðslega vinsæl í landinu, er að fá samstundis útgáfusamning hjá framleiðslurisanum Universal. Birkir bjóst því ekki við öðru, en að nú væru allir vegir færir og hann gæti farið að gefa út tónlistina sína, en hann hefur samið sína eigin tónlist síðan hann var mjög ungur. Það kom á daginn að Universal var með aðrar hugmyndir um tónlistarferil Birkis, og eftir langt, og á köflum mjög erfitt tímabil, hefur hann rift samningnum. Blaðamaður Akureyri.net sló á þráðinn til Birkis í Svíþjóð.

Mikilvægast af öllu er að ég fái að vera sá tónlistarmaður sem ég vil vera

„Ég er orðinn frjáls frá Universal,“ segir Birkir, aðspurður um stöðuna í dag. „Það hefur kosti og galla. Nú get ég einbeitt mér að því að gera tónlistina sem mig langar. Ókosturinn er sá að það er ekki fjármagnað. En ég ákvað að fylgja sannfæringunni og tók það ekki í mál að leyfa þeim að ráða hvernig tónlist ég gerði. Þau vildu að ég gerði eitthvað svona Scandi-popp sem er rosalega langt frá mér sem listamanni.“

Í samantekt væri hægt að segja að Birkir hafi í rauninni fórnað auðveldri frægð, fyrir hugsjón og listrænt frelsi.

 

Idol-ævintýri Birkis Blæs var draumi líkast, en hann féll algjörlega í kramið hjá sænsku þjóðinni. Mynd: Guðmundur Svansson

Birkir var á samning hjá Universal í tvö ár, frá því að hann vann Idolið í desember 2021, þangað til hann losnaði út í lok ársins 2023. „Þetta var mjög ergilegt, í rauninni,“ segir Birkir Blær um upplifun sína af „samvinnunni“ við framleiðendur Universal. „Það kom mér á óvart hvað þau í rauninni gera ekkert. Þau tala eins og það sé draumurinn að vera í minni stöðu, af því að þau geti komið manni á framfæri um allt með markaðssetningu. Markaðssetningarplanið þeirra var að segja mér að gera fleiri TikTok myndbönd.“

Lítil virðing fyrir listrænni sýn tónlistarmannsins 

„Ég skildi alls ekki tilganginn með því að einbeita mér að TikTok,“ segir Birkir Blær. „Þau hlustuðu ekkert á það sem mig langaði að gera. Þau bönnuðu mér í rauninni ekki að gefa út mína eigin tónlist, en sögðu mér að þá myndi mér ganga illa. Það yrði ekkert úr mér, ég fengi enga hjálp frá þeim, og ég myndi aldrei ná árangri.“ Birkir segir að það hafi líka komið honum á óvart hversu margir þarna vissu ekki sérstaklega mikið um tónlist. 

Mér leið alls ekki vel, og það tók eiginlega allt síðasta ár að jafna mig á þessu kjaftæði

Þegar Birkir kom fyrst til Universal, var í rauninni búið að semja tónlist sem hann átti að flytja. „Þegar ég sagði nei við því, að mig langaði ekki að taka þessi lög, þá sendu þau mig í einhverja tíma með framleiðslufólki og lagasmiðum sem áttu að semja tónlist með mér. Ég var búinn að útskýra hvað mig langaði að gera og sýna þeim dæmi, en þau pöruðu mig við fólk sem var að semja fyrir Eurovision og eitthvað svoleiðis, rosalega poppað fólk. Þegar ég sýndi þessu fólki það sem ég vildi gera fékk ég frekar dræm viðbrögð.“ Birkir segir að samvinnan hafi ekki náð neinu flugi, það væri í raun eins og að setja fótboltamann inn á í körfuboltaleik. Allir leikmenn góðir í því sem þeir gera, en passa bara ekki saman.

Neitaði að gerast Eurovision-poppdrengur

„Þau fóru svo næst að kenna mér um að það gengi ekki vel,“ segir Birkir Blær. „Ég var bara erfiður og það var erfitt að vinna með mér. Svo frystu þau mig bara, þau þurftu ekkert á mér að halda. Þau eru með Billie Eilish, Ed Sheeran og Justin Bieber á samning. Ef einhver svona lítill artisti vill ekki hlýða, þá er það enginn missir fyrir þau. Mér leið alls ekki vel, og það tók eiginlega allt síðasta ár að jafna mig á þessu kjaftæði. Eftir á að hyggja, þá sé ég að þau voru með ákveðna formúlu fyrir mig. Fyrst að ég var að koma beint úr Idol, sáu þau fyrir sér Idol-stjörnuna sem fer í Eurovision og er á vinsældalista poppstöðvarinnar. Þau voru meira að segja með fatastíl sem ég átti að fylgja og ég held að ég hafi átt að vera einhver poppstjarna sem krakkar hlusta á. Það gekk að sjálfsögðu ekki, það hefur aldrei verið hægt að fá mig til að gera eitthvað sem ég vil ekki gera.“

„Okkur líður vel í Stokkhólmi, það er gott að búa hérna,“ segir Birkir, en hann og kærastan hans, Rannveig Katrín, fluttu út þegar hún fór í skóla. Þau fóru þó til Svíþjóðar af því að þau langaði að búa þar, ekki bara fyrir skólann. „Ég hef verið að leita að aukavinnu, eftir að samningurinn fór eins og hann fór, en það er erfitt að fá vinnu hérna. Ég er í sænskuskóla til að læra tungumálið enn betur en langmestum tíma eyði ég í stúdíóinu.“

 

Birkir Blær flytur sína eigin tónlist á Græna hattinum. Enginn glimmergalli, bara hann sjálfur. Mynd úr safni Birkis.

Idol-frægðin er enn á sínum stað

„Fyrst eftir Idolið, svona fyrsta árið kannski, var ég mjög þekktur,“ segir Birkir Blær, aðspurður um frægðina. „Það gerist alveg ennþá að fólk er að tala við mig og biðja um mynd eða eitthvað, en það hefur minnkað. Ég sakna þess ekkert sérstaklega, en það er alltaf gaman að fá staðfestingu á því að fólk viti hver ég er og fíli það sem ég geri, en ég er frekar feiminn gæi að eðlisfari þannig að það getur alveg verið vandræðalegt.“

Birkir segir að hann hafi lítið komið fram á eigin vegum eftir Idol, þar sem hann hafi í raun ekki mátt það fyrir útgáfusamningnum. „Síðan ég losnaði, hef ég aðeins komið fram og fæ gigg hér og þar. Mig langar að klára að búa til plötu, sem ég er byrjaður á, til að hafa eitthvað efni að kynna. Ég fæ oft skilaboð um að fólk sé að bíða eftir nýju efni frá mér og finnst ég kannski hafa aðeins horfið.“

Leitar að styrktaraðilum

Birkir Blær er nýlega búinn að gefa út eitt lag sjálfur, sem heitir Leaders, en það er ádeila á stjórnvöld og aðgerðarleysi þeirra í loftslagsmálum. „Ég stefni á að gefa út annað lag í næsta mánuði,“ segir hann. „Það fjallar svolítið um það sem ég hef gengið í gegn um, að standa með sjálfum mér og komast undan. Ég er á fullu að gera mína eigin tónlist, sem er svona blanda af ýmsum stílum. Ég sem lögin og textana sjálfur. Hægt er að segja að ég sé undir áhrifum af blús, soul, gamalli rokktónlist og RnB, frekar blandað. Mig langar að búa til plötu, en það er dýrt og tímafrekt sport og ég er í rauninni að leita að styrktaraðilum, eins og staðan er,“ segir Birkir og bætir við að hann sé með allar klær úti.

„Ég sé ekkert eftir því að rifta samningi við Universal,“ segir Birkir Blær að lokum, en viðurkennir að ferlið hafi alls ekki verið auðvelt. „Þau voru svo leiðinleg. Mér líður bara vel með þessa ákvörðun og finn bara aðrar leiðir til þess að komast af. Mikilvægast af öllu er að ég fái að vera sá tónlistarmaður sem ég vil vera.“

 

Musteri tónlistarmannsins. Hér semur Birkir lög á nýja plötu. Mynd úr safni Birkis.

Ef það eru ef til vill áhugasamir lesendur, sem vita um styrkjatækifæri eða vilja persónulega styrkja tónlistarmanninn unga, þá er tölvupóstfang hans 65birkirbo@gmail.com.