Menning
„Afmælisveisla“ – 128 ár frá fæðingu Davíðs
21.01.2023 kl. 11:30
Í dag, laugardag, eru 128 ár frá fæðingu Davíð Stefánssonar, skáldsins ástsæla frá Fagraskógi. Af því blæs Minjasafnið á Akureyri til afmælisveislu í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6, frá klukkan 15.00 til 16.00.
Gestgjafar verða Vandræðaskáldin Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir. „Þau munu leika lausum hala segja sögur, syngja og lesa ljóð eftir húsráðandann í Bjarkarstíg 6. Afmælisgjafir og blóm eru vinsamlega afþökkuð en við innganginn verður tekið við frjálsum framlögum sem fara í viðburðasjóð Davíðshúss,“ segir í tilkynningu frá safninu.