Fara í efni
Mannlíf

Varla sást bóklaus nemandi í Glerárskóla

Nemendur í 5. bekk með bók í hönd. Sá árgangur las mest allra í skólanum. Mynd af veg Glerárskóla.

Nemendur Glerárskóla hafa sökkt sér niður í bókalestur síðustu daga, að því er fram kemur fram á vef skólans. „Efnt var til sérstaks lestrarátaks meðal krakkanna sem sannarlega sló í gegn. Átakið varði í tvær vikur og lesið var af kappi í skólanum og heima,“ segir í umfjöllun um átakið á vefnum.

„Á hverjum degi átaksins var birt súlurit á göngum skólans sem sýndi hversu mikið hver bekkur var búinn að lesa. Á gangi skólans og í skólastofum voru niðurteljarar sem sýndu hversu langt var eftir af átakinu. Ýmislegt var gert til þess að auka stemninguna hjá nemendum og hvetja til lestrar.“

Mikil stemning

„Mikil lestrarstemning skapaðist í skólanum meðan á átakinu stóð. Varla sást bóklaus nemandi. Alls lásu nemendur skólans samtals í 1.841 klukkustund sem gerir rétt um 6 klukkustunda meðallestur á nemanda og þá eru allir taldir með, þeir sem eru að byrja að lesa í fyrstu bekkjum skólans, jafnt sem fluglæsir unglingar.“

Lestrarátakið var sett upp sem keppni milli bekkja. Nemendur fengu klukkur sem þeir notuðu til að skrá lestrartímann sinn.

  • Krakkarnir í 5. bekk lásu mest meðan á átakinu stóð eða 9,27 klukkustundir hver nemandi að jafnaði eða alls 204 klukkustundir. Krakkarnir í fimmta bekk eru því Glerárskólameistarar í lestri.
  • Á yngsta stigi var kappið mest hjá 4. bekk, sem nú eru lestrarhestar yngsta stigs en þar lásu krakkarnir 5,21 klukkustund að jafnaði.
  • Spennan var mikil á unglingastigi en lestrarhestar stigsins þar eru nemendurnir í 10. SVB sem lásu að meðaltali 8,53 klukkustundir meðan á átakinu stóð.

Krökkunum var gert að velja bók við hæfi, helst bók sem þeim þótti krefjandi. Margir þátttakendur skráðu á klukkurnar sínar hvar þeir lásu og þar kom margt skemmtilegt fram, segir á vef Glerárskóla. „Nefndir voru staðir eins og í flugvél, Í Reykjavík, í sumarbústað, hjá afa og ömmu, svo eitthvað sé nefnt. Fullvíst er að átakið er mikil lestrarhvatning og auki um leið lesfærni og lesskilning nemendanna.“

Í lok umfjöllunarinnar segir: „Starfsfólk skólans tók einnig þátt í átakinu en það hafði ekki roð við lestrarþyrstum nemendum“!