Fara í efni
Mannlíf

Uppgjör á bleikum október í Hofi í dag

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis mun loka bleikum október með viðburði í Hofi í dag kl. 16-18.

Byrjað verður á kynningu á félaginu. Að því búnu verður erindið Sjálfsmildi - sjálfsrækt, þar sem fjallað verður um heilsu og vellíðan, mikilvægi þess að sýna sjálfum sér sjálfsmildi og hlúa að sér. Þá munu Inga Vestmann og Vilborg Jóhannsdóttir afhenda ágóða söfnunar Dekurdaga.

Viðburðinum lýkur með erindinu Góð samskipti sem Sirrý Arnardóttir flytur, en hún hefur áralanga reynslu af því að koma fram í fjölmiðlum og fer yfir gagnleg ráð um góð samskipti, að geta tjáð sig af öryggi og líka þegar orð eru óþörf eða okkur er orða vant.

Viðburðurinn er öllum opinn.