Tvö jólatré voru á Ráðhústorgi 1955
Fróðleiksmoli frá Minjasafninu á Akureyri
6. desember – Gjöf frá vinabæjum
Jólatré hefur prýtt Ráðhústorgið á Akureyri síðan árið 1952 þegar Bergen í Noregi færði bæjarbúum tré að gjöf.
Árið eftir varð Akureyri formlega hluti norrænnar vinabæjarkeðju ásamt Lahti í Finnlandi, Västerås í Svíþjóð, Álasundi í Noregi og Randers í Danmörku. Upphaf vinabæjartengslanna má rekja til innrásar Sovétríkjanna í Finnland árið 1939. Sænsk yfirvöld vildu styðja við Finna án þess að brjóta stefnu Svíþjóðar um hlutleysi, því voru sænskir og finnskir bæir paraðir saman og sænskir íbúar réttu finnskum bræðrum sínum hjálparhönd um mat, klæðnað og byggingarefni svo nokkuð sé nefnt.
Eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk var ríkur vilji meðal norrænna ríkja að efla tengsl sín á milli, vinabæjasamstarf var eitt af því komið var á laggirnar og myndaðist fyrrnefnd keðja árið 1949. Jólatréð á Ráðhústorginu er táknrænn hluti vinabæjarsamstarfsins, táknmynd vináttu. Árið 1955 var vinaþelið þó sýnu mest því þá stóðu tvö tré á Ráðhústorginu annað frá Álasundi en hitt frá Randers sem jafnan hefur gefið jólatréð síðan.
Haraldur Þór Egilsson er safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Fróðleiksmoli frá Minjasafninu birtist á Akureyri.net á hverjum degi til jóla.