Mannlíf
Tvö Hrekkjavökuböll í Höllinni – MYNDIR
29.10.2022 kl. 23:00
Ljósmyndir: Hilmar Friðjónsson
Haldin voru tvö Hrekkjavökuböll – Happy Halloween – í Íþróttahöllinni á föstudagskvöld. Fyrst fyrir 8., 9. og 10. bekk grunnskóla og síðan fyrir 18 ára og eldri.
Tónlistarmennirnir sem stigu á svið voru Aron Can, Flóni, Jakob Möller og SviMA á fyrri tónleikunum og á þeim seinnu Aron Can, Flóni, Gugusar, Arnar Leó, Jakob Möller, ISSI og SviMA. Það var Hinrik Svansson eigandi HS kerfa sem stóð fyrir tónleikunum.
Hilmar Friðjónsson var með myndavélina á lofti á tónleikunum og sendi Akureyri.net þessar skemmtilegu myndir.