Fara í efni
Mannlíf

Tónaveisla félags eldri borgara – MYNDIR

Gísli Sigurgeirsson, Helena Eyjólfsdóttir og Saga Jónsdóttir fremst á sviðinu í Hofi á sunnudagskvöldið. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Haldið var upp á 40 ára afmæli Félags eldri borgara á Akureyri með sannkallaðri tónaveislu í Hofi í gær, sunnudag. Húsfyllir var á tvennum tónleikum.

Hljómsveitarstjóri og útsetjari var Daníel Þorsteinsson, en með honum léku Friðrik Bjarnason, Snorri Guðvarðsson, Grímur Sigurðsson, Valmar Väljaots og Halldór Gunnlaugur Hauksson.

Einnig kom fram drengjahljómsveitin Bravó; Sævar Benediktsson, Gunnar Ringsted og Kristján Guðmundsson ásamt Halldóri Gunnlaugi sem lék á trommur í stað Þorleifs Jóhannssonar sem lést á síðasta ári.

Helena Eyjólfsdóttir var heiðursgestur tónleikanna og auk hennar sungu Óskar Pétursson, Margrét Árnadóttir, Magni Ásgeirsson, Saga Jónsdóttir, Grímur Sigurðsson, Þór Sigurðarson, og Petra Björk Pálsdóttir.

Þá komu fram kór eldri borgara, Í fínu formi, sem Petra Björk stjórnaði, og Karlakór Akureyrar-Geysir. Stjórnandi hans er Valmar Väljaots.

Milli laga voru sýnd atriði úr gömlum kvikmyndum, m.a. úr söfnum Eðvarðs Sigurgeirssonar, Vigfúsar bróður hans, Friðgeirs Axfjörðs og Gísla Sigurgeirssonar, sem var sögumaður og kynnir á tónleikunum.