Tilkynnt um tíu efstu í kjörinu hjá ÍBA
Íþróttabandalag Akureyrar hefur gefið út hvaða tíu konur og tíu karlar urðu efst í kjörinu á íþróttafólki Akureyrar 2024. Þau sem sigruðu í fyrra, Baldvin Þór Magnússon (UFA) og Sandra María Jessen (Þór/KA) eru bæði á meðal tíu efstu.
Kjöri íþróttafólks Akureyrar árið 2024 verður lýst í verðlaunahófi ÍBA sem fram fer í Hamraborgarsalnum í Hofi fimmtudaginn 23. janúar og hefst kl. 17:30. Þar verður hefðbundin dagskrá með viðurkenningum fyrir Íslandsmeistaratitla og landsliðsfólk, heiðursviðurkenningar, styrkveitingar úr Afrekssjóði Akureyrar og svo hápunkti hátíðarinnar þegar kjöri íþróttafólks Akureyrar verður lýst.
Á meðal tíu efstu kvenna eru tvær frá UFA, tvær frá KA, ein frá Akri, HFA, KA/Þór, SA, Þór og Þór/KA. Í tíu efstu sætunum hjá körlunum eru þrír frá KA, tveir frá UFA, tveir frá Þór, einn frá Akri SA og GA.
Tilnefningar til íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar 2024 - tíu efstu í stafrófsröð.
Konur
- Anna María Alfreðsdóttir, Akri – bogfimi
- Anna Þyrí Halldórsdóttir, KA/Þór – handknattleikur
- Drífa Ríkharðsdóttir, KA – blak
- Eva Wium Elíasdóttir, Þór – körfuknattleikur
- Hafdís Sigurðardóttir, HFA – hjólreiðar
- Julia Bonet Carreras, KA – blak
- Sandra María Jessen, Þór/KA – knattspyrna
- Shawlee Gaudreault, SA – íshokkí
- Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, UFA – frjálsar íþróttir
- Stefanía Daney Guðmundsdóttir, UFA – frjálsar íþróttir
Karlar
- Alex Cambray Orrason, KA – lyftingar
- Alfreð Birgisson, Akri – bogfimi
- Alfreð Leó Svansson, Þór – rafíþróttir
- Baldvin Þór Magnússon, UFA – frjálsar íþróttir
- Gísli Marteinn Baldvinsson, KA – blak
- Hans Viktor Guðmundsson, KA – knattspyrna
- Jóhann Már Leifsson, SA – íshokkí
- Matthías Örn Friðriksson, Þór – pílukast
- Veigar Heiðarsson, GA – golf
- Þorbergur Ingi Jónsson, UFA – frjálsar íþróttir