Mannlíf
Þrjú skemmtiferðaskip á Akureyri í dag
14.07.2023 kl. 06:00
Azamara Journey við sólsetur í Slóveníu. Skipið kom til Akureyrar í gærmorgun og fer á brott í bítið í dag.
Tvö skemmtiferðaskip koma til hafnar á Akureyri í bítið í dag en á svipuðum tíma leggur eitt úr höfn, Azamara Journey, sem kom fyrir sólarhring.
- Azamara Journey – 676 farþegar, 400 í áhöfn – Tangabryggja – Koma 07:30 í gærmorgun – Brottför 07.00 í dag
- Mein Schiff 3 – 2.506 farþegar, 1.000 í áhöfn – Oddeyrarbryggja – Koma 07.00 – Brottför 19.00
- Ambience – 1.596 farþegar, 696 í áhöfn – Tangabryggja – Koma 07.00 – Brottför 17.00
Upplýsingar birtar daglega í samstarfi við Hafnasamlag Norðurlands