Fara í efni
Mannlíf

Samgönguviku lokað á hjólum í Kjarnaskógi

Fjölskyldur komu saman og hjóluðu um skóginn með félagsmenn úr HFA í broddi fylkingar. Myndir: Skúli Gunnar Árnason.

Hjólreiðafélag Akureyrar og Akureyrarbær stóðu fyrir fjölskylduviðburði í Kjarnaskógi síðastliðinn sunnudag og var það lokapunktur á Evrópsku samgönguvikunni hér á Akureyri. 

Viðburðurinn var vel sóttur, fjölskyldur komu saman og hjóluðu um Kjarnaskóg með félaga frá Hjólreiðafélaginu í broddi fylkingar. Að lokum var svo boðið upp á grillaðar pylsur. 

Á vef Akureyrarbæjar má finna nokkrar myndir sem Skúli Gunnar Árnason hjá HFA tók í Kjarnaskógi á sunnudaginn. Akureyri.net tekur þær hér að láni.